Búnaðarrit - 01.01.1987, Side 309
AUK ABÚN AÐA RÞING
291
á reynslustigi, krefjast sérþekkingar, ef þær eiga að bless-
ast. Þarf þá ekki síður leiðbeininga við í daglegum vinnu-
brögðum á búunum en í fræðilegum hlutum.
Því er í ályktuninni lögð á það áhersla að endurskipu-
leggja leiðbeiningaþjónustuna og samhæfa hana kennslu og
rannsóknum. Á undanförnum tveimur Búnaðarþingum
hefur verið ályktað um þessi efni.
Á grundvelli búvörulaganna er samið um ákveðið magn
búvöruframleiðslu á ári til ársins 1992. Framleiðendum er
mikið í mun, að neysla búvöru aukist. Því þarf búvörufram-
leiðslan að verða með sem hagkvæmustum hætti og vör-
urnar tilreiddar á þann veg, sem neytendum fellur í geð.
Að undanförnu hefur verið unnið að athugunum og
áætlunum, sem geta nýtst við gerð þeirrar heildaráætlunar,
sem ályktunin gerir ráð fyrir.
í jarðabók þeirri, sem ályktunin gerir ráð fyrir, þurfa að
vera glöggar upplýsingar um einstakar jarðir og sveitir.
Lýsa þarf jörðum og greina frá stærð þeirra og búrekstrar-
stöðu, m.a. með því að skrá upplýsingar um byggingar,
ræktun, hlunnindi og áhöfn svo og annað, sem fram kemur í
opinberum gögnum.
Flest er þetta fyrir hendi í tölvu bændasamtakanna, en
þarfnast samræmingar og leiðréttinga.
Auk þess, sem sett er fram í almennri áætlun, þarf að
taka sérstaklega tillit til þeirra bænda, sem búa við erfiðar
aðstæður. Kemur þá til álita, að bændur, sem bregða þurfa
búi eða draga verulega úr búrekstri, fái eftirlaun fyrr en
almennar reglur gera ráð fyrir, enda myndi það greiða fyrir
kynslóðaskiptum og endurnýjun í stéttinni.
Þó að bændasamtökin hafi veg og vanda af gerð áætlun-
arinnar, er eðlilegt, að leitað verði samstarfs við aðra aöila,
sem eru í aðstöðu til þess að veita faglegar upplýsingar.
Eðlilegt er, að haft sé samráð við landbúnaðarráðuneytið
um túlkun á stefnu stjórnvalda í þessu máli.
Vegferö þjóðarinnar um aldir, eldgos og slæmt veöurfar.