Búnaðarrit - 01.01.1987, Page 349
LANDBÚNAÐURINN 1986
331
bygginga loödýraskála voru veitt 204 lán (135) og 21 til
fóðurstöðva. Hitaveitur fengu nú 22 lán (54). Lán til
jarðakaupa urðu 102 (120) og til dráttarvélakaupa 134
(172). Skuldbreytingalán voru veitt 90 (62).
Tekið skal fram að fjöldi lána út á fjós og fjárhús gefur
ekki skýra mynd af fjölda húsa, sem lánað er út á, þar sem
lán eru oftast veitt í þrennu lagi út á hverja framkvæmd.
í allt veitti Stofnlánadeildin 847 lán (896) að upphæð kr.
521,0 millj. (374,2).
Af um það bil 439 milljónum kr., sem lánaðar voru til
framkvæmda eða nýfjárfestinga, fóru 163 millj. kr. til
loðdýraræktar, 122,9 millj. kr. til loðdýrahúsa, 40,5 millj.
kr. til fóðurstöðva, 97,6 millj. kr. til vinnslustöðva, 35,1
millj. kr. til fjósa, 23,6 millj. kr. til dráttarvélakaupa, 30
millj. til lána út á votheyshlöður, 9 millj. kr. til fjárhúsa og
til gróðurhúsa og grænmetisgeymslna 18,2 millj. kr. svo
helstu flokkarnir séu nefndir.
Til skuldbreytinga var varið um 23 millj. kr.
Lífeyríssjóður bœnda veitti í allt 241 lán (313), þar af 115 til
bústofnskaupa (118) og 126 til íbúðarhúsa (195) eða
óbundin lán. Samtals námu lánveitingar hans 58,2 millj. kr.
(55) millj.)
Byggðasjóður veitti í allt 64 aðilum lán að upphæð nálega
130 milljónir króna til ýntissa þátta landbúnaðar.
Þessir voru helstir: Fiskeldi 23 aðilar að upphæð 81
milljón króna, fóðurstöðvar fyrir loðdýr 11 lán samtals 20,2
milij. kr., 15 einstakir loðdýrabændur fengu samtals 16,5
millj. króna og 11 ferðabændur fengu samtals 5,4 millj. kr.