Heilbrigðismál - 01.01.1952, Blaðsíða 2
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
2
Síðan Gregg birti rannsóknir sínar, árið 1941, hafa menn séð svo
mörg dæmi þess, hvernig rauðir liundar geta valdið vansköpun, ef kon-
an fær þá á fyrstu mánuðum meðgöngutímans, að rétt er talið að losa
konuna við fóstrið, ef hún veikist af rauðum Imndum á fyrstu mánuð-
um meðgöngutímans.
Hinsvegar hafa menn ekki tekið eftir því, að aðrar sóttir, svo sem
mislingar eða hettusótt, eigi neinn verulegan þátt í ]tví að vera valdar
að vansköpunum, þótt enn sé fullsnemmt að kveða upp algeran sýknu-
dóm yfir þessum sóttum.
Þá er vitað að næring konunnar kemur mikið við sögu í þessu tilliti.
Rtissneski læknirinn Ivanowsky veitti því athygli 1923, að er hungurs-
neyð gekk yfir landið jókst fjöldi þeirra harna, sem fæddust fyrir tím-
ann eða andvana og að óskapnaðir og hverskonar vanskapnaðir urðu
algengari. í Indlandi og Japan hefir B-vítamínskorti oft verið kennt
um Iive mikið fæðist þar af börnum andvana, fyrir tímann og með
ýmsa vanskapnaði.
Með tilraunum hafa menn sýnt. fram á, að vöntun á einum þætti í
fæðu móðurinnar getur haft áhrif á afkvæmið. Þannig sýndu Romanoff
og Bauernfeind fram á það 1942, að fótleggir afkvæmanna verða stuttir
ef móðurina skortir riboflavin (þáttur af B-vítamíni, sem er í mysu og
gefur henni gula litinn). Fyrir rúmum áratug komust Warkany og Nel-
son að þeirri niðurstöðu, að rottur sem aldar eru á riboflavinsnauðu
fóðri eignast afkvæmi með meira eða minna ófullkomna beinagrind.
Hjá þriðjungi afkvæmanna fundu þeir greinileg lýti á beinagrindinni,
svo sem óeðlilega stutt bein í neðri kjálkanum, stutt bein í fótleggjum
eða framfótum, svarandi til framhandleggs mannsins. Á mönnum eru
það mjög mikil lýti ef neðri kjálkinn er vanþroskaður, svo að hökuna
vantar að kalla má. Konur sem hafa óbeit á mjólk þegar þær ganga með
barn, ættn að reyna að drekka sýrn eða mysu til þess að forðast slíka
vansköpun á barni sínu.
Fyrir kemur að börn fæðast með öll bein mölbrotin og deyja í fæð-
ingunni eða fæðast andvana. En þessi vansköpun getur verið á lægra
stigi, þannig að barnið fæðist lifandi og vex upp, en bein þess eru ein-
lægt að brotna. Það má ekki stíga ógætilega út úr rúmi sínu; hvað þá
detta, ef ekki á að brotna í því eitthvað bein. Þótt þessi börn geti náð
fullorðinsaldri er hætt við aðþau verði örkumla af beinbrotum. Nýlega
hefir indverskur læknir, sem unnið hefir við rannsóknastofnun í Liver-
pool, sýnt fram á að unnt er að framkalla slíkar vanskapanir í kjúkling-
um með því að dæla insulini inn í eggið meðan það er að ungast út. Ef
tiltölulega stórum insulinskammti (0.05—6 einingum) er dælt inn í
rauðuna á 3.-6. degi, kemnr vanþroski í beinin og þeim hættir til að