Heilbrigðismál - 01.01.1952, Blaðsíða 3
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
3
brotna, mismunandi mikið eftir því hve miklu hefir verið dælt. Sér-
staklega vildi brotna sköfnungsbeinið neðantil, oftast í egginu, en
einnig eftir að unginn var skriðinn út úr egginu, svo að sýnilegt var að
þessi tilhneiging hélzt lengi á eftir.
Insulin flýtir fyrir brennslu kolvetna, en B-vítamín eru nauðsynleg
til að kolvetnin geti klofnað og brunnið. Truflun á þessum efnaskipt-
um getur því eðlilega valdið truflun á þroska fóstursins.
Þó að riboflavin sé nauðsynlegt fyrir eðlilegan þroska fóstursins; þá
er ekki þar með sagt að allar ófrískar konur þurfi þess vegna að þamba
mysu eða sýru. Ef konan drekkur hálfan til heilan lítra af mjólk á dag
fær hún riboflavinþörf sinni fullnægt og auk þess mörgum öðrum þörf-
um, því að hún þarf ýms eggjahvítuefni og steinefni auk vítamínanna.
Fiskur og kjöt er góð næring fyrir þungaðar konur og góð regla er fyrir
þær að borða lifur, hjörtu eða nýru að minnsta kosti einu sinni á viku.
Auk þess á hún að taka lýsi í skammdeginu á hverjum degi og einnig á
sumrin ef hún fer ekki út.
Vel nærð kona á hraustari og fallegri börn, betur gerð að flestu leyti
en þau verða ef næring konunnar er lítil eða ófullkomin. Það verður
því aldrei of rækilega brýnt fyrir verðandi mæðrum hve mikils vert er
að þær nærist vel meðan þær ganga með börnin. Það sannast hér sem
endranær, að lengi býr að fyrstu gerð.
í þessu sambandi má minnast á það, að ekki er langt síðan farið var
að gera skurðaðgerðir á börnum sem fæðast með hjartagalla. Vanskap-
anir á lijarta eru engan veginn sjaldgæfar og jafnaðarlega mjög alvar-
legs eðlis, svo að barnið getur lítt notið sín vegna þeirra, þolir litla
áreynslu og deyr löngu fyrir aldur fram, oftast án þess að hafa getað
stundað nokkra atvinnu.
Nú eru gerðar skurðaðgerðir á mörgum þessara barna með mjög góð-
um árangri, svo að þau þola miklu belur alla áreynslu og geta lifað
eðlilegu lífi. Þessar aðgerðir má telja með mestu framförum, sem orðið
hafa í læknisfræðinni í seinni tíð. Heilsudeild Sameinuðu þjóðanna
liefir sent lækna, sem sérstaka þjálfun hafa í þessum aðgerðum, til
ýmsra landa til þess að lækna slík börn og kenna jafnframt læknunum
í viðkomandi landi að gera þessar aðgerðir. Þannig liafa þúsundir barna
verið skorin upp og fengið nýja heilsu og betri eftir aðgerðina. Þessa má
líka minnast, þegar talað er um að Sameinuðu þjóðirnar geri ekkert
gagn. Sannleikurinn er sá að á vegum þeirra er unnið mikið og nytsamt
starf á sviði heilbrigðismálanna, t. d. í sambandi við berklaveiki og
ýnrsa hitabeltissjúkdóma.
Aðgerðir við hjartagöllum eru engan veginn hættulausar og aldrei
verður það hjarta, sem þannig er lagfært, eins gott og nýtt. Til þess að