Heilbrigðismál - 01.01.1952, Side 7
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
7
sjúklingsins. Þessi meðferð var reynd við 49 krabbameinssjúklinga. Níu
þeirra dóu skömmu seinna og hjá þremur þeirra rotnaði kirtillinn út.
Af þeim 37 sem fengu notið áhrifa kirtilsins losnuðu 33 við verkina
fram á dauðadag eða voru lausir við þá þegar greinargerðin var samin.
Þessir sjúklingar höiðu krabbamein í maga, ristli, endaþarmi, lungum
osf. Hver kirtilgræðing entist í 2—3 mánuði og að þeim tíma liðnum
þurfti að endurnýja hana, annars stórhrakaði sjúklingnum. Höfundur-
inn segir að sjúklingarnir Iiafi ekki aðeins losnað við kvalir sínar, held-
ur hafi sjúklingunum fundizt þeim vera að batna. Þeir fengu aukna
matarlyst og þyngdust, og í sumum tilfellum virtist líf þeirra lengjast.
Geislalækningatækin
voru afhent Landsspítalanum fimmtudaginn 14. lebrúar s. 1. Þau hafa
ýmsa kosti fram yfir eldri tæki, t. d. hvernig hægt er að beita sterkum
geislum á yfirborði líkamans, svo að áhrifin verða mjög mögnuð á til-
tölulega litlú svæði, en geislarnir dreifast mikið áður en þeir fara
dýpra. Kemur þetta sér vel við smáæxli í húð, t. d. byrjandi krabbamein
í andliti. Hinsvegar er hægt að láta geislana ná djúpt, svo að þeir geta
komizt að meinsemdum hvar sem er í líkamanum.
Fyrir hönd Krabbameinsfélags Reykjavíkur afhenti próf. Niels
Dungal tækin, en forsætisráðherra, Steingrímur Steinjiórsson, þakkaði
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar með mjög vinsamlegri ræðu. Georg Lúð-
vígsson þakkaði fyrir hönd Landsspítalans og dr. med. Gísli F. Petersen
fyrir hönd röntgendeildarinnar.
Krabbameinsfélag íslands
var stofnað s.l. sumar, þannig að jrað er samband þeirra krabbameinsl'é-
laga sem fyrir eru. Þau eru enn sem komið er aðeins þrjú; í Reykjavík,
Vestmannaeyjum og Hafnarfirði. í stjórn þess eru Niels Dungal, for-
maður, Alfreð Gíslason, ritari, Gísli Sigurbjörnsson, gjaldkeri, frú Sig-
ríður Magnússon, Magnús Jochumsson, settur póstmeistari í Reykjavík,
Hallgrímur Benediktsson, stórkaupmaður Gunnar Möller, lögfræðing-
ur, Guðjón Gunnarsson, Hafnarfirði og Bjarni Snæbjörnsson, læknir,
Hafnarfirði.
Krabbameinsfélag íslands hefir nú tekið við Fréttabréfinu og er