Heilbrigðismál - 01.01.1953, Page 6
6
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
veikin væri arfgeng. Þegar berklasýkillinn fannst og bakteríuvísindin
sigruðust á hverjum sjúkdómnum eftir annan, beindist öll athygli
læknanna að þeim, svo að minna var skeytt um arfgengið, sem flestum
þótti þá litlu máli skipta. En nú hefur áhuginn vaknað á ný fyrir þætti
erfðanna í útbreiðslu berklaveikinnar.
Tveir amerískir læknar, Kallman og Reissner, birtu 1946 ritgerð, sem
ruinskaði við hugmyndum manna um þessi efni. Þeir fóru í gegnum
skýrslur New York ríkis til þess að hafa uppi á öllum berklaveikum
mönnum og konum sem höfðu eignast tvíbura. Sá tvíburinn sem fyrr
fannst var kallaður ,,lykil-tvíburi“ (index-twin), og síðan var reynt að
hafa uppi á „meðburanum" (co-twin) ásamt öðrunr nánustu skykl-
mennum, og athugað um berklaveiki í þeim.
Hversu mikla tilhneigingu sem menn kunna að hafa til þess að verða
berklaveikir, geta þeir þó aldrei sýkzt nema þeir fái berklasýkilinn í sig.
í New York ríki hefur það fram til þessa verið tiltölulega auðvelt að ná
til lians, þar sem 90% af íbúunum liafa smitazt áður en þeir eru orðnir
fullvaxnir. Smitunin ein er ekki afgerandi um það, hvort maður verður
berklaveikur eða ekki, lieldur ýmislegt annað sem miklu munar, því að
tiltölulega fáir verða berklaveikir af þcim sem smitast. Ef ytri aðstæður
skiptu mestu máli um það livort berklasýkillinn fær góðan jarðveg eða
ekki, yrði að búast við svipaðri útkomu í sömu fjölskyldu, þar sem allir
búa við sömu skilyrði. Systkini mundu veikjast álíka mikið af berkla-
veiki, hvort sem þau væru tvíburar eða ekki. Ef hins vegar erfðirnar
hafa mikið að segja í þessu sambandi, myndi rnaður búast við að til-
tölulega stór hluti af meðburum berklaveikra eineggja tvíbura væru
berklaveikir, en hins vegar ekki meðburar þeirra tvíbura sein ekki eru
eineggja, því að þeir hafa allt aðra erfðaeiginleika.
Kallman og Reissner athuguðu skyldmenni „lykiltvíburanna" með
þetta fyrir augum. Þá kom í ljós að berklaveiki höfðu
Eineggja meðburar......................... 87%
Ólíkir meðburar (ekki eineggja)......... 25,6%
Önnur systkini ......................... 25,5%
Hjónabandsmakar ......................... 7,1%
Þeir tvíburar sem ekki eru eineggja, standa gagnvart berklaveikinni
rétt eins og hver önnur systkini, en eineggja tvíburarnir eru líkir í því
sem öðru, að ef annar þeirra fær berklaveiki, eru 87% líkur til þess að
hinn fái hana líka. Og ekki nóg með það, heldur hættir þeim til þess að
fá veikina í söinu staði, í sömu líffæri, með sama móti. Þessir tvíburar
eru eins líkir eins og tvær manneskjur geta verið, því að eitt egg hefur