Heilbrigðismál - 01.01.1953, Side 8

Heilbrigðismál - 01.01.1953, Side 8
8 FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL mönnum með þessa aðferð. Eftir að hafa prófað sig áfram á dýrum beittu þeir sams konar dvaladái við meiri háttar handlæknisaðgerðir, einkum þar sem sjúklingurinn hafði lítinn viðnámsþrótt, en þurfti mikillar aðgerðar við, eins og við krabbamein í maga. Á 10 sjúklingum deyfðu þeir taugakerfið (einkum það vegetativa, sem stjórnar innýfl- urn) og kældu sjúklinginn. Sá yngsti var 53 ára, en sá elzti 74 ára. Af þessum sjúklingum voru sjö haldnir slæmu krabbameini, hjá öllurn nema einum í maga. Aðeins einn þeirra var 53 ára, allir hinir yfir sext- ugt. Eftir aðgerðina var sjúklingurinn settur í dvaladá og var það oftast ákveðið fyrirfram, þegar ástand sjúklingsins var talið venju frernur bágborið. En stundum var það ekki ákveðið fyrr en meðan á aðgerðinni stóð, ef búast þótti mega við miklum eftirköstum. Enginn sjúklinganna dó og læknarnir telja að þannig framkallað dvaladá geti hjálpað mörgum sjúklingi til þess að komast yfir erfiðan uppskurð. Blóðþrýstingurinn fellur ekki, sjúklingurinn kastar ekki upp, honurn líður vel og liann man ekkert af því sem gerzt hefur. Ekki bar á því að sárin greru verr en ella og öllum sjúklingunum heilsaðist vel eftir aðgerðina. Deyfilyfið þarf að drjúpa inn í æð sjúklingsins jafnt og stöðugt með- an dvaladáið á að haldast, því að innýflataugarnar mega ekki vakna til starfs. Sennilega á þessi aðferð eftir að reynast vel til þess að koma í veg fyr- ir lost (schok), og er þá mikið fengið, því að illa hefur gengið hingað til að ráða við taugalost, þótt mikið hafi áunnizt á seinni árum. Væri mikið unnið fyrir krabbameinssjúklinga ef þessi aðferð ætti eft- ir að gefast vel, því að fáir þurfa hennar eins mikið með. En aðrir sjúklingar eiga einnig að geta haft mikið gagn af henni, einkum þeir sem hafa óeðlilegan skjaldkirtilsvöxt með háum efnaskiptum og eru oft mjög órólegir og eirðarlitlir. Notið minningarspjöld Krabbameinsfélags Islands við andldt vina yðar. Fást i lyfjabúðum i Rvik og Hafnarfirði (nema i Laugavegs Apóteki). Minnizt Krabbameinsfélags íslands, ef þér gerið erfðaskrá. FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL er gefið út af Krabbameinsfélagi íslands. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Niels Dungal, prófessor. Kemur út 9—10 sinnum á ári. Árs- gjald er kr. 30.00, sem greiðist fyrirfram. Meðlimir krabbameinsfélaga landsins fá Frétta- bréfið fyrir kr. 25.00. Pantanir sendist til Krabbameinsfélags íslands, pósthólf 673, Reykja- vik, ásamt ársgjaldinu. — Prentað i Prentsmiðjunni Hólum h.f.

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.