Heilbrigðismál - 01.01.1963, Qupperneq 6

Heilbrigðismál - 01.01.1963, Qupperneq 6
Helzftu kvartanir reykingamanna Af töflunni sést, að flestir reykingamenn, sem draga reykinn niður í lungu, kvarta um hósta eða mæði, eða 4—6 sinnum fleiri en ekki-reykingamenn. Um ýmsa meltingar- óreglu kvarta einnig miklu fleiri þeirra, sem eru í reykingamannahópnum. Þó eru alltaf margir sem ekkert kvarta og virðast þola tóbakið vel, að minnsta kosti lengi framan af. Hitt verður einnig að hafa í huga þegar hugsað er um þessi mál, að ekki- reykingamenn kvarta að sjálfsögðu um ýmis sjúkdómseinkenni, sem þá stafa af öðrum orsökum, en þegar litið er á heildina, eða þúsundir manna spurðir út úr, þá verður niðurstaðan eins og taflan sýnir, að mun Fatnaður og matargjörð Þar segir úr einu héraði: „Hér þykir ekki annað matur en kjöt, og þó einkum kinda- og hrossakjöt. Sárafáir kunna átið á græn- meti, nema kartöflum, sem neytt eru á öll- um heimilum. Viðburður er, ef nýr fiskur er á boðstólnum. Áfengisnautn. Kaífi og tóbak Reykjavik. „Á árinu var selt áfengi í Reykjavík fyrir 121.5 milljónir króna. í húsakynnum lögreglunnar í Reykjavík (,,kjallaranum“) komu 4791 manns. Lang- flestir, eða rösklega 4200 dvöldust þarna vegna ölvunar. Ennfremur er sagt frá rekstri Bláa Bands- ins að Flókagötu 29—31 hér í bæ, en þar var tekið á móti 325 körlum og 43 konum, en vistdagar voru samtals 12870.“ Um þessi mál segir ennfremur úr Ólafs- fjarðarhéraði: „Ekki er hægt að segja að um neinn drykkjuskap sé að ræða. Kaffi er mikið drukkið og reykingar miklar. Byrja sumir drengir í barnaskóla." 6 Af þeim, Af þeitn, Hlutfall sem reykja sem ekki (reykingam./ Kvartanir eOa vindlinga, reyhja, ekki-reyk- sjúkdómseinkenni % % ingamanna) Hósti 33,2 5,6 5,9 Lystarleysi 3,3 0,9 3,7 Mæði 16,3 4,7 3,5 Verkir fyrir brjósti 7,0 3,7 1,9 Niðurgangur ... 3,3 1.7 1,9 Óeðlileg þreytutilf. 26,1 14,9 1,8 Magaverkir .... 6,7 3,8 1,8 Hæsi 4.8 2,6 1,8 fleiri reykingamenn kvarta, eða allt að 6 sinnunr fleiri en ekki-reykingamenn, miðað við jafnstóra hópa. Það er auðvelt að skýra þau einkenni, sem vart verður frá brjósti. í hverjum vindling eru 35 mg af tjöru, og í kringum 2,5 mg af nikótíni. Öll þessi tjara og annað ryk sogast niður í hinar Meðferð ungbarna Úr einu héraði segir þetta: „Meðferð ungbaran ágæt nema hvað mæður nenna ekki að hafa börn sín á brjósti.“ Úr öðru héraði segir þetta: „Þrátt fyrir áróður fer brjóstmötun minnkandi. Meðal- tal brjóstmötunartíma liefur verið 1.7 mán- uður í ár.“ Húsdýr as j úkdómar Þar segir t. d. frá Eskifjarðarliéraði: „Doði í kúm eftir burð er mjög algengur í öllu héraðinu. Margir bændur gefa kúnum kalk, 1—2 mánuðum fyrir burð. Þetta hefur vafalaust dregið talsvert úr hastarlegum doðaköstum, en engan veginn útrýmt sjúk- dómunum. Allskæður lungnabólgufaraldur lierjar á sauðfé, einkum á útmánuðum." Margt lleira ber á góma í skýrslunum, t. d. er sagt frá mannskaðarannsóknum og öðrum réttarlæknisstörfum, svo og lækna- ráðsúrskurðum og fleiru, sem ekki er ástæða til að rekja hér. FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁI.

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.