Heilbrigðismál - 01.01.1963, Qupperneq 7

Heilbrigðismál - 01.01.1963, Qupperneq 7
fíngerðu lungnablöðrur og lungnapípur, sem klæddar eru mjög viðkvæmum þekju- frurnum í tveim lögum. Sumar frumurnar eru með bifhárum sem leitast við, með lireyfingum sínum að fjarlægja öll óhrein- indi úr lungunum. Nikótínið lamar lireyfingar bifháranna. Þessvegna setjast óhreinindi og slím fyrir í lungnapípum og lungnablöðrum á meðan reykt er, og í Jrví ríkara mæli því lengur sem reykt er. Þegar hætt er að reykja um skemmri eða lengri tíma komast bifhárin í gang aftur og byrja að flytja óhreinindin upp úr lungun- um. Þess vegna kemur nætur- og morgun- hóstinn. Fyrsta sígarettan að morgni dags kann að auka á hóstann, en síðan lamast bifhárin á ný, lióstinn hættir og ryk og sót tekur að safnast fyrir á nýjan leik. í þessum óhreinindum eru ýmiss krabba- vekjandi efni, og sjálft nikótínið dregur saman smáæðar og truflar Jrannig blóðrás- ina í lungunum. Allt þetta hjálpast að til að breyta frum- imi og frumukjörnum, og umbreyttu frum- fréttabréf um heilbrigðismál urnar kunna að þróast betur í tóbaksreyk heldur en eðlilegar eða heilbrigðar frumur. Ef lengi er reykt, t. d. árum saman má bú- ast við að umbreyttu frumurnar nái yfir- höndinni, á kostnað þeirra heilbrigðu. Þannig verður smám sanran öll lungnaþekj- an sjúk og í mörgum tilfellum nær krabba- meinið yfirhöndinni. Þessar athuganir skýra einnig, að hægt muni að snúa óheillaþróuninni við, að nokkru eða öllu leyti, ef hætt er að reykja áður en skemmdirnar eru orðnar allt of miklar. (frá E. Cuyler Hammond) Bólusetning íundin gegn hættu- legum húsdýrasjúkdómi Nýtt bóluefni hefur nú fundizt gegn hin- um hvumleiða kúasjúkdómi júgurbólgu. Nákvænrar rannsóknir á kúm, sem bólu- settar voru með efni, sem unnið var úr sjúkum kúm, ásamt með eggjarauðu, sýnir að hægt er að ráða við klasa-sýkil nokkurn, sem veldur bólgu í júgrum á kúm. Haft er eftir framleiðendum bóluefnis- ins, lækninunr Hans Blobel, og David Ber- man við Háskólann í Visconsin í Madison, að þetta mál sé þó ekki fullrannsakað enn, og þurfi að gera rannsóknir í stórum stíl með bólusetningum. Áður hefur verið reynt að bólusetja við þessum sjúkdómi, og kom þá í ljós, að hægt var að skapa aukið mótstöðuafl gegn júgur- bólgunr, sem sérstakir klasa-sýklar valda. Sagt er, að um 50% af kúastofninum hafi tekið júgurbólgu-sýkilinn, en aðeins 25% Jreirra veikist. Júgurbólgan lrefur verið viðfangsefni vís- indanranna um áratugi. Júgurbólgan gerir mjólk kúnna ónotlræfa til nranneldis. Þessar rannsóknir voru birtar í Ameríska dýralækna-tínraritinu, The American Jour- nal of Veterinary Research, 23:7, 1962. Heimildir: Science Newsletter, marz 1962. 7

x

Heilbrigðismál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.