Heilbrigðismál - 01.01.1963, Side 9

Heilbrigðismál - 01.01.1963, Side 9
Krabbameinsfélögin stórauka starfsemi sina Á s'.ári keyptu krabbameinsfélögin liália húseignina að Suðurgötu 22 iyrir starfsemi sína. Nú um áramótin hefur Krabbameins- félag íslands keypt allt húsið og sett sig í töluverða skuld þess vegna. Með þessu aukna húsrými verður mögu- legt að færast meira í fang en liingað til og liefur stjórn félagsins þegar samþykkt að liefja baráttu gegn tveimur tegundum krabbameins, sem farið liafa greinilega vax- andi á síðasta áratug, krabbameini í lung- um og krabbameini í legi kvenna. Auk þess eru í gangi víðtækar rannsóknir á krabba- meini í maga á vegum félagsins. í undirbúningi er nú að láta gera kvik- mynd um heilsuspillandi áhrif reykinga, og koma þeirri kvikmynd á framfæri í öllum barna- og unglingaskólum landsins. Hins vegar er ákveðið að hefja allsherjar- leit að krabbameini í legi, með því að gefa öllum konum á aldrinum 25—60 ára kost á að láta rannsaka legháls sinn með frumu- rannsókn, og hefja þá starfsemi í Reykja- vík. Um 40 þús. konur eru á þessum aldri á öllu landinu. Er áætlað að þessi fjölda- rannsókn geti liafizt síðar á árinu í liúsi Krabbameinsfélagsins, sem mun standa undir öllum kosntaði af þessum rannsókn- um. Þó að fjárráð félagsins hafi batnað til mikilla muna frá því sem áður var, þá er °ss ljóst að þær framkvæmdir, sem nú standa fyrir dyrum, muni verða svo fjár- h’ekar, að félaginu muni ekki veita af að *á styrk úr sem flestum áttum, enda er hér verið að vinna að almennigshagsmunum, þar sem útlit er fyrir að unnt verði að halda legkrabba niðri jafnframt því sem tilraun fréttabréf um heilbrigðismál verður gerð til að vernda yngri kynslóðina fyrir lungnakrabbameini. í þessu skyni hefur félagið látið prenta heiðurshlutabréf, sem er kvittun til þeirra sem leggja fram skerf til starfsemi vorrar. I trausti þess að margir landsmenn, sem öðrum betur eru staddir, verði fúsir til að láta eitthvað af hendi rakna til starfsemi vorrar, höfum við látið prenta áðurnefnd heiðurshlutabréf. Ekki þarf annað en að síma eða skrifa til félagsins og tilkynna fjár- hæð þá og nafn, sem setja má á heiðurs- hlutabréfið og verður það þá sent gefanda. RÚÐUGLER VERÐLÆEKUN A flokkur 3 mm. Verð per. ferm. kr. 69,00. B flokkur 3 mm. Verð per. ferm. kr. 59,00. Söluskaltur innifalinn. Marz Trading Company hf. Klapparstíg 20 . Sími 17373 9

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.