Heilbrigðismál - 01.09.1977, Blaðsíða 15

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Blaðsíða 15
fræðingar og lífefnafræðingar hafa stundað mikilvægar rannsóknir sem beinast að því að finna muninn a eðli og efnasamsetningu eðlilegra og illkynja fruma. Ekki er kleift að gera rannsóknum þessum nokkur teljandi skil hér en þó má nefna uppgötvanir á eðli kjarnasýra og stjórn á efnabúskap fruma, en þessar rannsóknir hafa reynst veigamiklar til skilnings á myndun tllkynja meinsemda. Einnig má geta þess hér að ónæmisfræði hefur vaxið ntjög fiskur um hrygg á síðustu árum og hefur hún veitt mikilvæga þekkingu, ekki aðeins á ónæmissjúkdómum heldur einnig bað eru ekki einungis efni í mat- v*lum og í andrúmsloftinu sem talið er að geti valdið krabbameini. í apríl á þessu ári var bannað í Bandaríkj- unum að nota efnið „tris“ (2,3 — dibromopropyl phosphate) en það var notað til að koma í veg fyrir að barnanáttföt væru eldfim. Ástæðan fyrir banninu er sú að í Ijós kom að efnið er virkur krabbameinsvaldur. Efni þetta hefur verið notað við framleiðslu á 120 milljón stykkjum af •ötum úr acetate, triacetate og polyester. Ekki er vitað til að fatn- aður sem fengið hefur slíka meðferð hafi verið eða sé til sölu í verslunum hérlendis, þó það sé alls ekki úti- lokað. því hvernig líkaminn getur svarað myndun æxlisvaxtar. 6. Erfðafræði. Þáttur arfgengis í myndun æxla hefur verið rann- sakaður frá ýmsum hliðunt. Koma þar til m.a. fjölskyldurannsóknir, tvíburarannsóknir og loks má geta um litningaathuganir til saman- burðar á eðlilegum og illkynja frumum. Þróunarferill krabbameins. Hinar ýmsu vísindagreinar sem minnst er á hér að framan hafa allar lagt okkur til upplýsingar um eðli krabbameins og er sú vitneskja smám saman að fá á sig heillega mynd. Þekking þessi liefur komið hægt sökunt þess hve marg- þætt áhrif eru að verki og þróunar- tíminn langur. 1 sumurn tilfellum hefur krabbameinsvaldur upp- götvast hjá mönnurn vegna þess hve krabbameinsvakinn var öflugur. Myndunartími meinsins var skammur, og afmarkaður hópur manna varð fyrir áhrifum hans. Einnig eru dæmi þess að æxlistegundin, sem umræddur krabbameinsvaki olli, hafi verið svo sérkennileg útlits, að vefjagerð æxlisins hafi dregið að sér athygli nteinafræðinga og leitt til könn- unar á hugsanlegum orsökum. Þannig háttaði til er sjaldgæf æxlistegund í lifur fannst hjá starfsmönnum plastiðju nokkurrar og reyndist krabbameinsvakinn vera „vinylchlorid". Önnur dæmi um rnyndun krabbameins af ytri áhrifum eru notkun asbestsefna í iðnaði og notkun lyfsins „stilbesterol“ hjá þunguðum konurn með yfirvofandi fósturlát. Stúlkubörn mæðra sem fengu þetta lyf á meðgöngutím- anum eiga á hættu að fá sérkenni- lega tegund af krabbameini í leg- hálsi. Höfundur þessarar greinar athugaði hvort æxli af þessari tegund hafi fundist hérlendis og komst að því að engin slík hafa myndast meðal íslenskra kvenna. Kemur það heim við það að lyfið hefur ekki verið notað hér í þessum tilgangi svo vitað sé. Krabbameinsvekjandi áhrif geislavirkra efna og geislunar eru kunn af reynslu manna eftir kjarn- orkusprengingarnar í Hiroshima og Nagasaki árið 1945 og einnig af slysum við notkun geislavirkra efna í iðnaði. Faraldsfræðilegar rannsóknir á krabbameini hafa bent á að tíðni ýmissa æxlistegunda er mismun- andi eftir löndum og er breytileg á mismunandi tímum. Er það ábending unt, að ýmsir krabba- meinsvakar séu að verki og í mis- miklum mæli eftir lifnaðarháttum okkar og umhverfi. Athyglin beinist æ meir að ýmsum efnunt í fæðu og andrúmslofti. Hvaö getum viö gert? Þáttur Krabbameinsfélags íslands í rannsóknastörfum á krabbameini hefur fram til þessa einkurn beinst að því að skrá öll krabbamein hérlendis og að flokka æxlin sem nákvæmast. Liggja nú fyrir veigamikil gögn um tíðni þessa sjúkdóms meðal íslendinga og má byggja á þeim um hegðun þessa sjúkdóms hérlendis. Enn- frentur hefur Krabbameinsfélagið lagt áherslu á skipulegar hóprann- sóknir íslenskra kvenna með tilliti til æxla í kynfærum og nú á seinni árum á leit að brjóstakrabbameini, en þessar tegundir æxlisvaxtar eru hvað tíðastar dánarorsakir af krabbameini meðal kvenna. Krabbameinsfélag íslands hefur gert markvissa könnun á leiðum til þess að útfæra starfsemina til leitar að byrjunarstigum krabbameins í öðrum líffærakerfum en þeim er leitin hefur náð til fram að þessu. Myndu slíkar rannsóknir beinast fyrst og fremst að illkynja mein- semdum í lungum og maga, jafnt hjá konum sem körlum. Þar sem nú er ljóst, af niður- stöðum rannsókna af því tagi sem lýst er hér að framan, að ýmsir SEpTEMBER 1977 15

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.