Heilbrigðismál - 01.09.1977, Blaðsíða 29

Heilbrigðismál - 01.09.1977, Blaðsíða 29
heilsufarssögu sinnar, sem auka- atriði til viðbótar öllu hinu, að blöðrubólga hafi fylgt sér allt frá barnæsku en þetta sé nú svo mein- laus kvilli að ekkert hafi verið um hann skeytt nema með höppum og glöppum og þá venjulega án nokkurrar nánari rannsóknar. Þvagsýkingar haga sér mjög mismunandi, sjúklingarnir ýmist mikið eða lítið lasnir, en eftir- tektarvert er að hjá allmörgum, bæði börnum og fullorðnum, er ekkert óeðlilegt að merkja og við- komandi kenna sér einskis meins þó bakteríur séu í þvaginu. Ung- börn hafa allmikla sérstöðu, ein- kenni oft mjög óljós og almenns eðlis, eru ef til vill mest fólgin í óróleika og vansæld. ælum, upp- köstum og jafnvel niðurgangi, lág- um eða engum hita, lystarleysi og þau þyngjast lítið eða ekkert — einkenni sem litla athygli vekja hjá aðstandendum og þykja síður en svo benda til sjúkdóms í þvag- færum. Hin eldri, sem farin eru að geta tjáð sig kvarta oft um sviða við þvaglát, hafa bráða og tíða þvag- látaþörf og sum börn, sem um skemmri eða lengri tíma hafa verið komin upp á lag með að halda sér þurrum, fara allt í einu að bleyta sig aftur. Ekki ósjaldan fylgir verkur eða óþægindi fyrir ofan lífbeinið. Þessi einkenni gefa til kynna að sýkingin sé aðallega bundin við þvagblöðruna, en þó síður en svo útilokað að alvarleg nýrnaskemmd liggi þar að baki. Að jafnaði koma þó heiftugri einkenni, þegar sýk- ingin berst til nýrnanna — sjúkl- ingurinn fær þá háan hita, skjálfta eða kölduflog, verki í mjóhrygg, uppköst og yfirleitt veikindalegt útlit. Skoöun og ræktun Það er nauðsynlegt að skoða þvag hjá barni, sem grunað er um þvagsýkingu. Við allar bakteríu- sýkingar myndast einhver gröftur, sem er þó mismunandi mikill eftir tegund baktería og staðsetningu þeirra í líkamanum. Gröfturinn samanstendur að mestu af hvítum blóðkornum, sem líkaminn fram- leiðir í auknum mæli til að ráðast á óvininn, bakteríurnar. Sjáist gröftur eða hvit blóðkorn við smá- sjárskoðun gefur það til kynna að bakteríur séu í þvaginu, jafnvel þótt ekki sé hægt að koma auga á þær undir smásjánni. í öðru lagi er svo reynt að rækta bakteríur úr þvaginu. Bakteríurnar eru þá látn- ar vaxa á sérstöku æti og tekur það 1—2 sólarhringa. Bráðabirgða ræktun, sem sker úr um hvort nokkrar bakteríur séu yfir höfuð í þvaginu, er nú hægt að gera með mjög handhægum aðferðum hvar sem er á landinu. Til að ákvarða endanlega um bakteríutegund og næmi hennar fyrir lyfjum þarf að Þau una sér vel litlu börnin á Barna- spítala Hringsins. Mynd: Gunnar V. Andrésson. SEPTEMBER 1977 29

x

Heilbrigðismál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.