Heilbrigðismál - 01.09.1977, Page 24
KSí :
itiÓ Upplýsinga
Miöglt
^ %jrr
BAUSCH & LOMB _
MJÚKAR
H&HSt
. ■ ,'■ ■ *' ,
LINSUR
í fyrsta sinn á íslandi BAUSCH & LOMB mjúkar augnlinsur.
Sjást alls ekki á auganu og valda ekki óþægindum.
m
/ngó/fs S. Gís/asonar hf.
BANKASTRÆT! 14. SÍMI 16000
24
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
hve neysla á jurtaafurðum hefur
verið af skornum skammti. Á síðari
árum hefur þetta þó breyst til muna
með vaxandi neyslu grænmetis og
ávaxta hér á landi.
Auk hins bandaríska gests fluttu
þrír íslendingar stutt erindi á
þessum umræðufundi.
Dr. Ólafur Bjarnason prófessor
gat um skráningu á tíðni maga-
krabbameins á íslandi og sýndu
þær tölur glöggt að tíðni þessa
krabbameins hefur farið lækkandi
undanfarna tvo áratugi hér á landi
vins og reyndar víðast hvar annars
staðar í heiminum. Af Norður-
löndunum er tíðni magakrabba-
meins langhæst hér bæði í konum
Hluti þátttakenda í umræðunum um
hugsanlegar orsakir magakrabba-
meins.
og körlum en Finnar koma síðan
næslir okkur.
Miðað við I00.000 var tíðnin hjá
íslenskum körlunt 71 árin 1955 — 61
en var komin niður í 43 á árununt
1969 —75. Sambærilegar tölur fyrir
konur voru 39 og 22.
Guðmundur Georgsson læknir
skýrði frá athugun sem hann og
samstarfsmenn hans á tilrauna-
stöðinni að Keldum höfðu gert
fyrir nokkrum árum, á krabba-
meini í smáþörmum í íslensku
sauðfé. Var álit þeirra að há tíðni
þess kynni að stafa af því hve mikið
af köfnunarefnissamböndum
(nítrötum) var í síldarmjöli sem
kindum var gefið í fóðurbæti. Árið
1966 var breytt löggjöf unt nteð-
höndlun síldarsem fór í bræðslu og
við það minnkaði mjög magn
köfnunarefnis í mjölinu. Ekki
hefur enn gefist tækifæri til að
kanna hvort tíðni meinsins hefur
lækkað við breytta fóðurgjöf.
Dr. Jón Óttar Ragnarsson mat-
vælaefnafræðingur sagði frá
rannsóknum sínum á nitrati og
nítríti sem gerðar voru á íslenskum
matvælum fyrir nokkrum árum.
Mælingarnar sýndu að magn
þessara efna var mjög mismikið
eftir framleiðendum en I sumum
tilvikum langt fyrir ofan leyfileg
mörk.
Talsverðar umræður urðu að
loknum framsöguerindunum. Var
mönnum sérstaklega tíðrætt um
hugsanlegan þátt aukinnar neyslu á
C-vítamíni í lækkandi tíðni maga-
krabbameins hér á landi. Einnig
var rætt um samdrátt þann sem
orðið hefur í neyslu saltkjöts svo og
um setningu reglugerðar um notk-
un nítrata og nítríta í þessum til-
eanei. J.Ó.R. & E.Ó.
SEPTEMBER 1977
25