Alþýðumaðurinn - 15.05.1990, Page 1
8. tölublað 15. maí 1990
Ábyrgðarmaður: Jökull Guðmundsson
Afgreiðsla: Strandgötu 9 Sími 24399
Setning texta: Alþýðumaðurinn
Prentvinnsla: Dagsprent hf. Akureyri
f hinum nýju lögum um verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga
sem samþykkt voru á Alþingi 17.
maí 1989 er meðal annars að
finna breytingu á íþróttalögum.
Þar segir í 49 grein: Bygging
íþróttamannvirkja í þágu skóla
og til almenningsnota er í verka-
hring sveitarfélaga. Sveitarstjórn
veitir byggingarstyrki til íþrótta-
félaga og íþróttasamtaka eftir því
sem ákveðið er í fjárhagsáætlun
sveitarfélagsins. Því var það í
beinu framhaldi af samþykkt
þessara laga, auk samþykkt nýrra
tekjustofnalaga sveitarfélaga þar
sem þeim eru markaðir tekju-
stofnar til að standa undir þeim
kostnaði sem af þessum lagasetn-
ingum leiðir, að bæjarstjórn
Akureyrar samþykkti hinn 1.
febrúar síðastliðinn rammasamn-
ing milli Akureyrarbæjar og
íþróttabandalags Akureyrar.
Samningurinn kveður á um
byggingu, afnot og rekstur
íþróttamannvirkja á Akureyri. í
fyrstu grein samningsins segir að
Akureyrarbær viðurkenni þjón-
ustuhlutverk íþróttafélaganna í
æskulýðs og íþróttamálum. Einn-
ig að íþróttafélögin viðurkenni
hlutverk sitt og skyldur við
bæjarbúa.
Þar kemur einnig fram að
Akureyrarbær vill með samningi
þessum tryggja að fé það sem
bæjarsjóður leggur til byggingar
íþróttamannvirkja nýtist sem
best þeim sem stunda íþróttir sér
til ánægju og heilsubótar, sem og
þeim er hafa keppni að mark-
miði.
Þá segir í 6. grein samningsins:
Við gildistöku þessa samnings
eru í byggingu, eða nýlokið er
byggingu mannvirkja nokkurra
íþróttafélaga. Um áframhaldandi
framkvæmdir þessara mann-
virkja og skuldir vegna bygging-
arkostnaðar, skulu gerðir sér-
stakir samningar við þau félög
sem í hlut eiga, samkvæmt nánari
ákvörðun Bæjarstjórnar Akur-
eyrar. Á grundvelli þessa, og að
tillögu íþróttaráðs, var ákveðið
að gera samstarfssamning við
eftirtalin íþróttafélög:
1. Skautafélag Akurevrar, um
framkvæmdir sem þegar er lokið
við, og vegna framkvæmda sem
felast í byggingu 70 fermetra
búningsaðstöðu á félagssvæðinu.
2. íþróttafélagið Þór vegna
framkvæmda við félagsheimili og
vallarhús frá áramótum 1989/
1990, og þar til lokið er við þann
hluta hússins sem er ætlaður til
íþróttastarfsemi.
3. Golfklúbb Akureyrar vegna
framkvæmda við völl og félagsað-
stöðu á árunum 1985-1989, og
höfðu ekki verið styrktar úr
íþróttasjóði ríkisins.
Nú þegar eru hafnar viðræður
við Knattspyrnufélag Akureyrar
um samning vegna byggingar
íþróttahúss á svæði félagsins við
Lundarskóla. Ég gæti svo vel
hugsað mér að Tennis- og
Badmintonfélag Akureyrar yrði
haft með í ráðum þegar ráðist
verður í byggingu íþróttaaðstöðu
við Oddeyrarskóla.
Umræður hafa að vonum orðið
nokkrar um ágæti þessara samn-
inga, og sýnist þar sitt hverjum.
Það er bjargföst trú mín að þessi
skipan mála um framkvæmdir á
sviði íþróttanna, sem grundvöll-
uð er á áðurnefndum ramma-
samningi eigi eftir að reynast
íþróttahreyfingunni á Akureyri
hið mesta heillaskref.
Við Akureyringar erum
hreyknir af afreksfólki okkar í
íþróttum, og megum vera það.
Árangur þess hvetur aðra til
dáða, og til vaxandi þátttöku
ungs fólks í íþróttum. Ég hef full-
yrt það, að því fé sem varið er til
íþróttamála, sé vel varið og skili
sér til samfélagsins aftur í formi
minnkandi kostnaðar við heilsu-
gæslu.
Alþýðuflokkurinn hefur haft
frumkvæði í íþróttamálum bæjar-
ins þetta kjörtímabil, og honum
einum er treystandi til að halda
þeirri uppbyggingarstefnu áfram
Gísll Bragl Hjartarson bæjarfulltrúl. Efstl maöur á llsta Alþýðuflokksins.
(