Alþýðumaðurinn - 15.05.1990, Page 4
Jón Ingi Cesarsson skrifar:
Bætt umhverfi, betra mannlíf
- Umhverfismál eru stórmál framtíðar
Áratugum saman hafa íslending-
ar talið að í skjóli fjarlægðar
landsins frá iðnríkjum Evrópu
yrði mengun sjávar, lofts og láðs
ekki vandamál sem við þyrftum
að glíma við í nálægri framtíð.
Nú seinustu árin hafa augu
manna opnast fyrir því að meng-
un umhverfis okkar er orðin
staðreynd á íslandi sem taka ber
föstum tökum. Sorp hefir verið
urðað skipulagslaust, skólp hefur
runnið óhreinsað til sjávar um
illa gerð ræsi sem varla ná til
fjöru, og jafnvel hefur skolpi og
iðnaðarúrgangi verið hleypt í
nálægan árfarveg innan byggðar.
Fyrirtæki hafa komist upp með
það að losa sig við úrgangsefni
sín til sjávar og á sorphauga með
þessum hætti án nokkurs eftirlits
eða athugana á því hvort þar væri
um hættuleg efni að ræða.
Hér verður að spyrna við
fótum. Sorp verður að flokka og
pakka þannig að hægt sé að
skipuleggja urðun þess eða eyð-
ingu eftir því sem efnasamsetning
þess gerir kröfu til. - Skólp má
alls ekki renna óhreinsað til
sjávar, og strangt eftirlit þarf að
hafa með losun úrgangs frá fyrir-
tækjum. Pað vantar vel gerð lög
og traustar vinnureglur með
raunhæfum viðurlögum sem gera
eftirlitsaðilum kleift að sinna
starfi sínu með árangri. Það vant-
ar löggjöf sem stefnir að því að
verja líf og heilsu þegnanna
fremur en að verja þá brotlegu
fyrir nöldri nágranna sinna.
Það er stefna ALÞÝÐU-
FLOKKSINS að nú skuli hafið
átak í þessum efnum. Átak til
framkvæmda. Átak til hugar-
farsbreytingar. Átak til þess að
snúa þróun umhverfismála til
betri vegar í bænum okkar. Að
hefja för til þeirra tíma AÐ
BÆJARBÚAR FÁI LIFAÐ í
SÁTT VIÐ LANDIÐ OG
Jón Ingi Cesarsson, póstfulltrúi.
NÁTTÚRU ÞESS, OG SKILI
HVORUTVEGGJA í BETRA
ÁSTANDI EN ÞAÐ VAR ÞEG-
AR VIÐ ÞVÍ VAR TEKIÐ.
Kæri kjósandi, sértu sammála,
viljir þú verða samferða, sétur þú
x-við A. þann 26. maí. GERUM
GÓÐAN BÆ BETRI. J.I.C.
SJÁLFBOÐALIÐAR
Þeir sem ætla að aðstoða kjósendur A-listans á kjördag
með því að aka þeim á kjörstað, eru beðnir að koma á
kosningaskrifstofuna og láta skrá sig.
KOSNINGASJÓÐUR KRATA
TILKYNNIR:
Framlögum í kosningasjóöinn er veitt viðtaka á kosninga-
skrifstofunni alla daga. Einnig má leggja framlögin inn á ávís-
anareikning nr. 5610 í íslandsbanka, Hafnarstræti 107.
KRATAR!
SKERPUM SAMSTÖÐUNA. NOTUM SKRIF-
STOFUNA TIL AÐ HITTAST OG RÆÐA
MÁLIN ALLTAF ER HEITT Á KÖNNUNNI.
SJÓMENN OG FERÐALANGAR.
MUNIÐ AÐ KJÓSA UTAN KJÖRFUNDAR
ÁÐUR EN FARIÐ ER.
NÚ MÁ ENGINN GLEYMA AÐ KJÓSA.
4 - ALÞÝÐUMAÐURINN