Alþýðumaðurinn - 19.12.1996, Page 13
ALÞÝÐUMAÐURINN
Austurhlið Gamla Apóteks, eins og hún leit út í upphafi. Teikning: Finnur Birgisson.
búð. Nýju eigendumir létu síðar for-
skala húsið, og var þá allt skraut fjar-
lægt, svo og timburpallurinn.)
Athugasemdir:
Hús þetta er eitt þeirra merkustu
í Innbænum og íhuga þarf hvemig
best verður staðið að því að tryggja
varðveislu þess. Til em nákvæmar
heimildir um útlit hússins áður fyrr
og má því færa það til fyrra horfs
með mikilli nákvæmni. Innan dyra
hafa ekki verið unnar jafnmiklar
skemmdir á húsinu og ætti að vera
auðvelt að endurbæta það sem úr-
skeiðis hefur farið. Apótekið getur
aftur orðið jafnmikil bæjarprýði og
það var og ætti að kappkosta að svo
verði.“ (Tilvitnun lýkur)
Um smiðinn
J. Chr. Stephánsson (1828 -
1910) lærði smíðar hjá Ólafi Briem,
timburmanni á Gmnd í Eyjafirði.
1856 fór hann til Danmerkur og var
þar við nám og störf í tvö ár. Heim
þessu nafni, og fjórði ættliður frá
fyrsta lyfsala bæjarins. Þegar hann
lést höfðu Thorarensenar því annast
lyfsölu til Akureyringa nær óslitið í
rúm 170 ár!
Oddur (I.) Thorarensen (1797 -
1880) var sonur Stefáns Þórarins-
sonar (1754 - 1823), amtmanns á
Möðmvöllum. Synir Odds (I.) vom
Steypujárnsstólpi. (Mynd F.B)
Útitröppur úr steypujárni við suðurstafn. (Mynd F.B.)
kom hann 1858 og var Apótekið
fyrsta húsið sem hann byggði eftir
það. Af öðmm húsum sem hann
teiknaði og byggði má nefna Akur-
eyrarkirkju, sem stóð í Fjömnni
(1862), Gránufélagshúsin á Oddeyri
(1873 og síðar) og Hótel Akureyri
(1885). Talið er líklegt að hann hafi
teiknað Möðmvallakirkju, en Þor-
steinn Daníelsson á Skipalóni var
yfirsmiður hennar. Jón smíðaði
einnig skip og lagði stund á ljós-
myndun, sem hann hafði kynnst í
Danmerkurdvölinni. Hann var vel
metinn borgari, var kosinn í fyrstu
bæjarstjóm Akureyrar 1863 og sat
samtals í bæjarstjóm í 17 ár. Á gam-
als aldri var honum falin umsjón
trjáræktarstöðvar, sem sett var um
aldamótin sunnan kirkjunnar í Fjör-
unni þar sem nú er trjágarður Minja-
safnsins, og var það aðalstarf hans
síðustu æviárin.
Um Thorarensena
Fyrir nokkmm ámm lést hér í bæ
Oddur Carl Thorerensen, lyfsali í
Akureyrar Apóteki. Hann var þriðji
lyfsalinn á beinum karllegg með
þrír: Jóhann Pétur lyfsali, sem lét
byggja Gamla Apótekið, Stefán
sýslumaður og Jakob söðlasmiður.
Jóhann Pétur lést í Ástralíu árið
1911.
Árið 1890 er Oddur (II.) Carl
Thorarensen (1862 -1934) skráður
búsettur í Apótekinu ásamt konu
sinni Ölmu, sem var fædd Schiöth,
og bami þeirra á fyrsta ári. Þau virð-
ast því hafa flutt heimili sitt þangað
áður en H. J. P. Hansen lést og búið
þar samtímis honum. Stefán sýslu-
maður (1825 -1901), faðir Odds II,
átti Aðalstræti 6, sem er næsta hús
sunnan við Apótekið, og bjó þar uns
hann seldi Hendrik Schiöth húsið
árið 1901. Flutti hann sig þá um set
til sonar síns, en lést síðar á því sama
ári. Á milli þessara húsa rann Búða-
lækurinn en brú var á honum sunnan
og austan við Apótekið, rétt við Að-
r^l sfræti 6
Hendrik Schiöth (1841 - 1923)
var tengdafaðir Odds II. Haim kom
hingað til lands frá Danmörku ásamt
Önnu (1846 -1921) konu sinni árið
1868, til þess að veita forstöðu nýju
bakaríi. Ánnar tengdasonur Schiöth-
hjónanna var Klemens Jónsson, sem
tók við sýslumannsembættinu af
Stefáni árið 1891 og varð síðar ráð-
herra, en Anna seinni kona hans var
dóttir þeirra hjóna. Klemens leigði
hjá H.J.P. Hansen apótekara (1825
- 1893) síðustu tvö æviár hans, og
er lýsingin hér að framan á morgun-
verðunum hjá Hansen ættuð ffá hon-
umv
Árið 1919 lét Oddur H. apótekið
í hendur sonar síns og alnafna. 1934,
sama ár og Oddur H. lést, var Gamla
Apótekið selt úr eigu fjölskyldunn-
ar. Nokram áram áram áður, eða
1929, hafði lyfjaverslunin verið flutt
í nýtt hús, sem Oddur HI. (1894 -
1964) lét reisa við Hafnarstræti, og
þar er hún enn.
Ástand 1992.
Gamla Apótekið ber nú lítinn
vott um fyrri glæsileika. Af upphaf-
legum frágangi þess er ekkert sýni-
legt nema vindskeiðar á stöfnum og
útitröppur úr steypujámi við suður-
stafn, sem era furðu heillegar. Þær
hafa verið færðar til þegar inngangi
var breytt, vora áður fyrir miðjum
stafni.
Áður en húsið var múrhúðað hafa
allir listar, gerekti og annað skraut
verið tekið burt, og síðan klætt með
pappa, undir múrhúðina. Hún er
talsvert sprungin á neðri hluta vest-
urhiðar, og víðast hvar era glufur
undir múrinn við hurðir og glugga.
Búast má við fúaskemmdum á
þessum stöðum.
Gluggar og útihurðir era af ann-
arri eða þriðju kynslóð, en era þó
að nokkra leyti á upphaflegum stöð-
um og nálægt upphaflegri stærð.
Syðri dyr á framhliðinni era horfnar
og dyr á suðurstafni hafa verið færð-
ar til. Enginn uppranalegur gluggi
er eftir í húsinu, þeir era allir eftir
tísku 6. áratugar þessarar aldar og
gluggasetningu hefur verið breytt í
nokkram atriðum.
Glögglega má sjá utan frá að
grannur hússins er mjög siginn.
Mænir hússins er sveigður niður í
miðjunni um ca. 15 cm, og þakbrún-
ir á austur og vesturhlið era ekki lá-
réttar. Meginsigið virðist vera um
miðju hússins, en einnig virðist út-
hringurinn vera missiginn. Inni í
húsinu hafa gólf að hluta verið rétt
af en sumsstaðar er á þeim greinileg-
ur halli og dyrakarmar er margir
skakkir, jafnvel svo að munar allt að
2 cm á hurðarbreiddinni.
Allt bendir til þess að ástæðan
fyrir siginu sé einfaldlega sú, að
grannurinn hafi ekki verið nógu
traustur í upphafi, þótt vel hafi verið
vandað til hússins að öðra leyti. í
brekkunum ofan við Akureyri háttar
víðast þannig til, að jarðvegur liggur
ofan á hallandi móhellu og skríður
hægt fram fyrir áhrif vatns og vixl-
verkunar frosts og þíðu. Á þeim
tíma, sem húsið var byggt hafði
mönnum ekki lærst hvemig granda
ætti hús við slíkar aðstæður.
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1996 - 13
®BÚNAÐARBANKINN
TD A I TOTI TD D A XTVT
\
• TRAUSTUR BANKI -
Xili/ HREINT LOFT...
Ífy£/ HREINT VATN...
HREIN JÖRÐ...
...HREIN AFURÐ
Brautryðjandi í baráttu
fyrir hreinna umhverfi.
Óskum viðskíptavinum okkar
og starfsfólki ^
gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
Þökkum samskiptin.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
Ó'skimi mðskiptammmv akkar gleðilegj'ajála úg/ jar&ældar d kamandi ári. ‘Pökkum wð&kiptin.
\ Í LJÓSGJAFINN HF . GLERÁRGÖTU 34 • 600 AKUREYRI ■ SÍMI462 3723 FAX 461 1760 • KT. 440269-7029 • VSK.NR. 895
s 1; £já& ðk lij jf§ fminili&tæki |g| IEMENS - BÚÐIN