Samtíðin - 01.03.1949, Síða 7

Samtíðin - 01.03.1949, Síða 7
SAMTiÐIN Marz 1949___Nr. 150___16. árg., 2. hefti SAMTÍÐIN kemur mánaðarlega, nema í janúar og ágúst. Argjaldið er 20 kr. og greið- ist fyriríram. Áskrift getur byrjað hvenær sem er. Úrsögn er bundin við áramót. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður Skúlason magister, simi 2526, pósthólf 75. Áskriftar- gjöldum veitt mótlaka í verzluninni Bækur & ritföng hf., Austurstr. 1, Bókabúð Aust- urbæjar, Laugaveg 34, og á Bræðraborgarstíg 29. Prentuð í Félagsprentsmiðjunni. FRA HRDRNUN ANN 24. jan. sl. átti eitt hið merkasta félag, sem stofnað liefur verið hér á landi, Náttúrulækningafélag ís- 1 a n d s, 10 ára afmæli. Þetta félag berst fyrir þeirri hugsjón að bæta hcilsufar ís- lenzku þjóðarinnar. Þetta göfuga markmið félagsins á ekkert skylt við loftkastala. Reynsla annarra stærri og reyndari þjóða hefur sýnt, að það er hægt að vinna gegn sjúkdómum og hrörnun með hollu matar- æði og öðrum hollustuháttum. Slíkt á ekk- ert skylt við kerlingabækur né krafta- verk. Þess eins er krafizt, að menn brjóti ekki í bág við þær reglur, sem móðir náttúra hefur sjálf skapað okkur og miða að því að tryggja hverjum manni góða heilsu og þar með skilyrði til að verða þjóð sinni að sem mestu gagni. Brautryðjandi náttúrulækningastefnunn- ar hér á landi er hinn gagnmerki læknir Jónas Kristjánsson, og er hann forseti NLFÍ. Jónas kynntist stefnunni í utanför- um sínum til Ameríku og Mið-Evrópu, er hann var héraðslæknir á Sauðárkróki. Munu nú liðin rösklega 30 ár, síðan hann boðaði hana fyrst norður þar. Árið 1938 sagði Jónas af sér embætti og fluttist til Reykjavíkur til þess að geta unnið hug- sjón sinni sem mest gagn. Með tilstyrk nokkurra áhugamanna stofnaði hann svo NLFÍ á fundi í Reykjavík 24. jan. 1939. Sá dagur er merkur orðinn í menningar- sögu fslendinga og mun þó æ merkari verða talinn, eftir því sem tímar líða. Það er í rauninni góðs viti, að NLFf hefur átt fremur örðugt uppdráttar. Is- lenzk reynsla sýnir, að því merkari fram- faramál, sem um er að ræða, þeim mun hatramlegri tregðu eiga þau einatt við að TIL HEILSU stríða hér á landi. Við erum ótrúlega dauf- gerðir og vanafastir, íslendingar. Það vek- ur því í raun og veru enga furðu, þótt þjóðin hafi ekki í skjótri svipan skipað sér dyggilegar undir merki þessa gagn- merka félagsskapar, sem vill leiða hana af óheillabraut óeðlilegrar óhollustu — og þar af leiðandi sjúkdóma og hrörnun- ar — til betri heilsu og aukinna afreka í skjóli aukinnar heilsuverndar. Hitt vekur allmikla furðu, að Jónas Kristjánsson skuli vera eini íslenzki læknirinn, sem enn hefur boðizt til baráttu undir merki NLFÍ. Vitað er þó, að ýmsir af merkari læknum landsins eru hlynntir skoðunum félagsins, enda þótt til séu þeir menn í læknastétt, sem veitzt hafa að félaginu og ekki farið dult með andúð sína á því. Hvað hefur NLFÍ gert sl. 10 ár? munu ókunnugir spyrja. Það hefur haldið fjöl- marga fræðslufundi að vetrarlagi, en geng- izt fyrir grasa- og gönguferðum félags- manna að sumarlagi. Það hefur gefið út samtals 7 stórmerkar bækur, sem allar fjalla um nauðsynlegar breytingar á hinu varhugaverða núverandi mataræði og ó- hollustudýrkun íslenzku þjóðarinnar í ým- issi mynd og miða þar af leiðandi að aulc- inni heilsuvernd. Það hefur um þriggja ára skeið gefið út tímaritið „Heilsuvernd“ með margvíslegum leiðbeiningum um aukna hollustu í lifnaðarháttum og hug- vekjum um þau efni. Það hefur síðan 22. júní 1944 rekið matstofu á Skálholtsstíg 7 í Reykjavík og unnið með henni braut- ryðjendastarf í átt til stórbætts mataræðis. Sumar aðrar matsölur hafa sýnt nokkra viðleitni í þá átt að taka þessa matstofu sér að fyrirmynd, og fjölmörg heimili hafa

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.