Samtíðin - 01.03.1949, Qupperneq 10
G
SAMTÍÐIN
Cju ím unclóó on
glímukappi Islands.
Hann vann Ármannsskjöldinn í
annað sinn 1. febr. s. 1. Guðmundur
er ifæddur að Núpi í Vestur-Eyja-
fjallahreppi 9. sept. 1923 og er því
25 ára. Hann byrjaði 9 ára gamall
að glíma, fór 17 ára gamall í
Iþróttaskólann í Haukadal, cn hef-
ur um 4 undanfarin ár æft glimu
hjá Glímufélaginu Ármanni.
Fundur Vínlands
Sífellt á Grænlandi sveima
sagnir af vestrænum löndum.
Enn þá fer ýmsa að dreyma
auðsæld á blómlegum ströndum.
Vesturför vilja þeir geyma
vori, er senn fer að höndum.
Illviðri halda þeim heima.
Hafís er þétt upp að söndum.
Vortíðin, blessuð af bændum,
bregður til suðrænna vinda.
Sólfar og sumar í vændum
samtaka velgengni mynda.
Farmenn til ferða sig tygja,
fundnir að hugprýði mestri,
loksins, að landinu nýja,
leitina hefja í vestri.
Ofsar þeim erfiði baka,
yfir þeim vakir þó náðin.
Stórbrotnu stormarnir taka
stundum af mönnunum ráðin.
Hafís og heldimmar þokur
hættur að skipinu draga.
Andstæðar illviðris-rokur
erta þá nætur og daga.
Löðrið á söxunum sýður,
siglt er í dirfskunnar nafni.
Húmský af himninum líður.
Hrópað er: „Land fyrir statni!“
Garpur við stjórnvölinn stendur,
stilltur, en jafnoki tveggja.
Gestrisnir geislar á strendur
guðvefinn dýrmæta leggja.
Frjálsborinn athafna-andi,
aflgjafi sóknar og keppni,
sigrar. Nú leggur að landi
Leifur Eiríksson heppni.
Allir hans ágæti róma.
Áfangans táhnun er hrundið.
Vesturheims víðáttur Ijóma.
Vínland hið góða er fundið.