Samtíðin - 01.03.1949, Qupperneq 13
SAMTÍÐIN
9
ast um Norðurlönd rækta megnið
af'sínum beztu túnum á þann hátt
að sá blöndu af rauðsmára og vall-
arfoxgrasi — Timothy. — Vér ráð-
um ekki við raúðsmárann, en Tim-
othy vex liér með ágætum. Hinir
nýjustu stofnar af því, sem varla
ha'fa verið reyndir hér á landi, gefa
feikna eftirtekju, ef jörð er í rækt-
un og vel á borið. Og það er betra
fóður en taða eins og hún gengur
og gerist. Þetta liefir verið reynt,
og hví ekki að nota þá reynslu. Sá
Timothy einvörðungu eða blöndu
af Timothy og axhnoðapunkti.
Bændur þurfa að eignast túnakra,
slá vellandi hávaxið gras i 5—10
ár, þá tekur hinn íslenzki túngróð-
ur við, þegjandi og þrautalaust, það
er að segja, ef bóndinn er þá ekld
orðinn svo einbeittur, að hann
plægir á nýjan leik og unir engu
öðru en ræktun og ræktaðri upp-
skeru.
Bændur, það er kominn tími til
að hætta að hjakka í söniu spor-
um við sáðslétturæklunina, við
vantrú á eigin gjörðir. Þér eigið að
hætta að sá einni og sömu blöndu
í hvaða jörð og hvaða flög sem er.
Þér eigið að velja yður fræ eftir
ástæðum. Þér eigið að veita yður
þá ánægju að sjá afrek handa yð-
ar og vaða grasið i mitti. Enn stönd-
um vér við þröskuld þeirra mögu-
leika, sem móðurmoldin leyfir oss
að gera að veruleika. Það er kom-
inn tími til að stiga yfir þröskukl-
inn.
í Noregi er komizt þannig að
orði um þá hluti i búskapnum, sem
illa reynast og arðlitlir eru, að það
verði ekkert „langhey“ úr þvi. Orða-
lagið lýsir trú bændanna á sáðgresi
og sáðsléttur samanborið við liinn
lága blendna gróður gömlu tún-
anna. íslenzkum bændum veitir
ekkert af því að fara að eignast
„langhey“, að vinna sigra í ræktun-
inni. Moldin leyfir það, þekking
bændanna og vilji á líka að leyfa,
að slík spor séu stigin, i stað þess
að þumbast gengna götutroðninga.
Timothy-akrarnir með 60—80
hesta töðufalli a'f lia eiga að verða
jafn sjálfsagðir á næstu árum og
beðasléttur voru um siðustu alda-
mót. Þá bænagjörð ræktunar ber að
stunda. Þá Guðs blessun á enginn
góður bóndi að neyta sér um lengur.
Frúin (við óvenjnlega ófriðan
mann): ,,En livað það er yndisleyt,
að þér skuluð ætla að dansa við mig;
þér eruð nefnilega eini maðurinn,
sem karlinn minn er ekki vitund
afhrýðissamur við.“
„Er miðstöð í húsinu, sem þú býrð
í?“
„Ég veit það ekki, ég bý á hana-
bjálkanum."
Ef þér óskið að eignast allt það, sem
til er af eldri árgöngum „Samtíðarinnar'*,
samtals nokkuð á fimmta þúsund bls., þá
sendið henni 150 kr. og yður mun verða
sent þetta fjölbreytta lesmál tafarlaust
burðargjaldsfrítt, livert á land sem er.
Utanáskrift: „Samtíðin“, pósthólf 75,
Reykjavík.