Samtíðin - 01.03.1949, Síða 18
11
SAMTÍÐiN
oCoptur Cju&niun-clóion:
5 ATT □ G L □ □ I Ð
FURÐULEGUR DRAUMUR
[,,SamtíSin“ liefur samið við Loft GuSmundsson rithöfund um,
aS hann skrifaSi a. m. k. 10 greinar fyrir ritiS. ÞaS er óþarfi
aS kynna þennan gáfaSa og bráSfyndna rithöfund lesendum
tímaritsins. Hann er löngu þjóðkunnur orðinn, þótt ekki væri
nema fyrir greinaflokkinn „Brotnir pennar“ i AlþýðublaSinu.
Loftur hefur sjálfur valið þessum greinaflokki heitið: Satt og
logið, og fer hér á eftir fyrsta grein hans. — Ritstj.].
LDFTUR GUÐMUNDSSDN
AÐ MÁ VEL VERA, AÐ ÉG SÉ
kominn af herskáuín víkingnm
langt aftur í ættir. Ég tel sennilegt,
að ættfræðileg rök hnigi í þá átt. í
raun réttri stendur mér nákvæm-
lega á sama um það. Ekki er til vík-
ingsandi í mér fyrir fimm aura. Ég
er friðsamur maður. Ofheldi, her-
virki og allt slíkt er mér viðurstyggð.
Uppeldi það, sem gerir valdhöfun-
um ldeift að etja saman þjóðum á
vigvelli, hata ég og tel svartasta
smánarblett á mannkyninu. Og ég er
ekki í neinum vafa um, að andi sá,
er ræður fyrir öllum þessum ófögn-
uði, hernaðarandinn, sé skilgetið af-
kvæmi fjandans, þessa gamla þjóð-
sagnaskratta, sem ríkti í viti eldslog-
anna undir jörðinni og potaði hvöss-
um klónum í sálir breyskra og synd-
ugra vesalinga, sem hann steikti og
kvaldi á glóðinni sér til skemmtun-
ar, en skrapp þess á milli upp á jörð-
ina, til mannfólksins, kom þar á stað
illlyndi, erjum og hvers kyns vand-
ræðum og vélaði sálir liöfðingjanna,
bæði veraldlegra og andlegra, út úr
skrokknum á þeim með veðmálum.
Sá beið ekki ósigur fyrir neinum,
nema Sæmundi sáluga í Odda.
Mér kom það því mjög á óvart, er
mig eina nótt fyrir skömmu dreymdi
draum, sem liver herforingi eða hat-
rammur byltingarsinni gat talið sér