Samtíðin - 01.03.1949, Qupperneq 31
SAMTÍÐIN
27
■liVEIR STRIÐSGRÓÐAMENN voru
* að tala saman.
1. stríðsgróðam.: „Þú ert alltaf að
kaupa jarðirnar. Ekki veit ég, hvar
þetta endar. Seinast kaupirðu allt
landið! Finnst þcr þú ekki vera nógu
ríkur, þó þú sért ekki að ásælast öll
þessi kot?“
2. stríðsgróðam.: „Ríkári ert þú en
ég, og samt hugsar þú ekki um ann-
að en að auðgast enn meira.“
1. stríðsgróðam.: „Það er alveg
rétt. En þú gleymir því, að ég er
piparsveinn. Ég á engin hörn, sem
auðurinn getur gert að iðjuleysingj-
um og ræflum.“
■PHOMAS EDISON veitti því einu
* sinni athygli, að starfsmenn hans
voru alltaf að líta á klukkuna í
vinnustofu hans. Að þessu varð til-
finnanleg vinnutöf. Daginn eftir
kom Edison með margar klukkur
og kom þeim þar fyrir, sem liægast
var að líta á þær. Verkamennirnir
urðu himinlifandi og liéldu, að upp-
fjmdingamaðurinn væri einungis að
gera þeim hægara fvrir. En brátt
veittu þeir því athygli, að engum
Iveim klukkum bar saman um, hve
framorðið væri. Rrátt kom að þvi,
að klukkugægjur mannanna urðu
alveg vonlausar tilraunir til að fræð-
ast um, hvað tímanum liði, og lagð-
ist ósiður þeirra þar með niður.
II T V E G I Ð „Samtíðinni“ áskrifendur
meðal vina yðar og kunningja. I na?sta
hefði hefst nýr greinaflokkur !..'r í tima-
ritinu.
Almenna fasteignasalan
(Brandur Brynj ólfsson)
Bankastræti 7. — Sími 7324.
Annast kaup á:
fasteignum, skipum, atvinnufyrir-
tækjum o. s. frv.
Bílamiðlunin
(Brandur Brynjólfsson)
Bankastræti 7. — Síini 7324.
er miðstöð allra bílakaupa.
Viðtalstími beggja fyrirtækjanna
er kl. 10—12 og 1—5 alla virka
daga ncma laugardaga kl. 10—12.
Framkvæmum:
Bílaviðgerðir,
Bílasmurningu,
Bílasprautun.
Seljum:
Bílavarahluti,
Bílaolíur,
Loftþrýstiáhöld
o. fi.