Samtíðin - 01.05.1957, Page 9

Samtíðin - 01.05.1957, Page 9
SAMTÍÐIN 5 Enn þá fagnar sérhver sál sælum endurfund. Glitrandi vín og víf veita mér stundarfrið. Hlæjandi ljúfa líf, ljáðu mér enn þá bið. Undurfagra ævintýr, ágústnóttin hljóð. Hjá þér ljómar Ijúf og hýr lífsins töfraglóð. VORVÍSUR Hægur sunnansvali seiðir í huga Ijóð. Breytist land við birtu býr sig grænum kjól. Angar vorsins ilmur upp úr gróðurmold, kæra fósturfold. Geislum fögrum gyllir glóey dali og fjöll. Kveður lóa kát við kot sem dýra höll. Allir eru jafnir, enginn settur hjá af vorsins vinaþrá. Skreytir foldu föla fegurð, lífsins blóm. • Víkur Norðri’ úr vegi við sinn skapadóm. Ekkert hér á jörðu yndislegra’ eg veit en mína móðursveit. Rögnvaldur Erlingsson. Prestur: „Og hvcið finnst yður helzt að manninum yðar?“ Frúin: „Ó, hann er svo eigingjarn, að það nær bara ekki nokkurri átt. Hvað haldið þér til dæmis, að hann geri á dögunum: Líftryggir sjálfan sig í staðinn fyrir að tryggja mig!“ ALLAR BlLAVÖRUR verður hagkvæmast að kaupa hjá Kristni GuSnasyni Klapparstíg 27. — Sími 2314. yy Ástamál yy Sumt fólk er alltaf að fjargviðrast yfir því, að það séu þyrnar á rósum. Eg þakka Guði fyrir, að þyrnarnir skuli hafa rósir. — R. C. Ástin býr ekki einvörðungu í mannssálinni, þar sem hún sækist eft- ir fegurð, heldur á hún sér einnig mörg önnur takmörk. Við kynnumst henni í mörgum öðrum myndum, i líkömum dýranna, í öllu, sem jörðin lætur í té, í stuttu máli: í öllu, sem skapað hefur verið ... Og mikilleik- ur og furðuvald ástarguðsins birtist í hvívetna, bæði í hinu himneska og því, sem jarðneskt er. — Plato. Karlmenn eru miklu hamingjusam- ari en kvenfólk. Bæði giftast þeir seinna og deyja fyrr. — X. Hvar finnst það hjónáband, sem ekkert er athugavert við. — Balzac. Eiginmaður gengur konu sinni í föðurstað. — Rússneskur málsháttur. Eg er fegin, að ég er ekki karl- maður, því að þá mundi ég neyðast til að ganga að evga kvenmann. — Frú de Stael. Mönnum finnst ánægjulegt að geta sér til um það, sem þeir sjá ekki. Ef til vill er sá, sem fyrstur fann upp fötin, höfundur ástarinnar. — Ségur. Eg vildi, að Adam hefði dáið með öll rifin á sínum stað. — Dion Bouci- cault. Raflagnir. — Viðgerðir. Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla. Raftækiavinnustofa Þorláks Jónssonar h.f. Grettisgötu 6. — Sími 4184.

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.