Samtíðin - 01.05.1957, Blaðsíða 16

Samtíðin - 01.05.1957, Blaðsíða 16
12 SAMTÍÐIN hálftíma seinna, lyfti liann einliverju, sem hann hafði fundið milli þils og veggjar, og lagði það hægt og varlega á gólfið. Það var hvitt, mjög hvítt. Seinustu geislar kvöldsólarinnar leiddu i ljós, að bak við múrhúðun- ina liafði verið fólgið harnslik. //. uíinajoáttur Shúldin hviköu : GUNNAR KRISTINSSON í Múla leyfði okkur að birta nokkrar stökur eftir sig hér í þættinum í nóvember s. 1. ár með loforði um fleiri seinna. Þær koma hér. Þessi var ort um mann, sem hafði full- mikið konuríki: Tögl og hagldir tel ég frúna tíðast hafa. Aðeins bara á einkafundum ofan á hann verður stundum. Þessi var kveðin til stúlku, sem gaf skáldinu undir fótinn: Þig að dá er mér um megn, margt er hulið, sérðu. Þú ert ekki gull í gegn, en gyllt að utanverðu. Ung og glæsileg stúlka var mjög eftir- sótt af karlmönnum eins og gengur. Þá varð þessi vísa til: Margir dá þig, menja gná, margt þér Ijáir prýði, en ýmsir spá, að ástarþrá af þér gljáann svíði. Þessi var ort til manns, sem lítið hafði haft af kvenhylli að segja um dagana: Húsgagnasmíðastofan Laugaveg 34B selur ávallt góð og ódýr húsgögn. Tekur einnig gömul húsgögn til viðgerðar. — Fljót og góð afgreiðsla. Simi 81461. Að faðma margar konur ei féll þér, vin, í skaut. Fjandakornið sem ég ekki trúi, að vistin yrði betri, ef þú værir bara naut á venjulegu miðlungs sveitabúi. Þessar stökur orti skáldið til konu sinnar: Þegar sumarsólin dvín og syrtir i huga mínum, eg vil taka andvörp mín undir vanga þínum. Augun duldar óskir tjá innst úr fylgsnum sínum. Af þér finn ég ilminn frá æskudraumum minum. Kunningi Gunnars bar honum á brýn, að hann hefði gleymt kvæðum. Þá kvað Gunnar: Þó að mörgu’ úr minni týni og mér til hnjóðs það út sé lagt, yfir glasi’ af góðu víni gæti ég þó eitthvað sagt. Þessi var kveðin til stúlku: Þó við blasi birta og vor, bregztu vonum mínum. Einskis liggja auðnuspor upp að bænum þínum. Að lokum er svo þessi, sem skáldið seg- ir, að ort sé út í bláinn: Heilags anda arftakinn er að hvessa ljáinn. Gustar inn um gluggann þinn, Guð er að blása á skjáinn. Þátturinn þakkar Gunnari Kristinssyni stökurnar og vonast eftir fleirum við hentugleika. Húfugerð. Herraverzlun. P. EYFELD Ingólfsstræti 2, Reykjavík Sími 5098.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.