Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 18

Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 18
14 SAMTÍÐIN lika, en það er algert einsdæmi enn sem komið er, að mæðgum (eða feðg- um) liafi hlotnazt þau. ÞEGAR MARlA hafði lokið skóla- námi heima í Póllandi, gerðist hún kennslukona hjá ýmsu efnuðu fólki. Á einu þessara heimila felldu sonur hjónanna og kennslukonan unga hugi saman. En ekki mátti á það minnast, að þau fengju að eigast, enda þótt María væri geðþekk, vel upp alin og prýðilega menntuð. Annars stefndi hugur Maríu í æsku meira til menntunar en ásta. Þeklc- ingarþorstinn var ástríða hennar. Hugur hennar var allur við eðlisfx-æði og stærðfræði, og um þau efni skrif- aðist hún á við föður sinn, þar til hún var 24 ái*a. Þá tókst lienni með að- stoð Bronya, systur sinnar, sem lokið hafði dolctorsprófi i París og gift var pólskum doktor þar, að komast í Soi-- honne-háskólann. Rættist þá loks draunxur pólsku kennslukonunnar: að öðlast aðstöðu til að stunda nám í þeim visindagreinum, sem hugur hennar stóð til. Sorbonne hafði bætzt nýr afburðanemandi, sem átti fyrir sér að auka enn á liróður liins forna menntabóls. Fyrst í stað lagði Mai-ia alla ást sína á eðlisfi'æðina sjálfa. Seinna deildi hún henni milli fræði- greinarinnar og hins mikla eðlisfi-æð- ings, Péturs Curie. Svo mikil ei’u nöfn Curielijónanna í sögu eðlisfræðii'annsóknanna og svo stórkostleg afrek þeirra á því sviði, stöi’f, sem frú María hélt á- fram eftir lát manns síns, að það vill oft gleymast, að þeim auðnaðist að- eins að stai’fa saman og njótast í 11 ár. Það var við eina af Signubrúnum, Nýju bi’ú svonefnda (Pont Neuf), en þar er umferð mikil, að Pétur Curie vai’ð fyrir hestvagni nxeð þeim afleið- ingum, að hann beið þegar hana. Allir hljóta að skilja, hvílíkur harm- ur var að konu lians kveðinn við frá- fall hans á hezta aldri. Hún missti ekki einungis ástrikan eiginmann, heldur og ónxetanlegan starfsfélaga. Vísindin höfðu við dauðaslys þetta beðið mikið afhroð. HVERNIG var María Curie í dag- legum háttum sínum? Gaf hún sér tíma til að halda sér til fyrir manni sínum? hefin’ oft verið spurt. Talið er, að hún liafi aldrei látið sig dreyma um, að hún væri gædd verulegum kvenlegum yndisþokka. En maður Iiennar elsk :*ði hana og dáðist að kvenlegum > i disleik hennar. Vitað er, að eitthvað það seinasta, sem liann sagði við hana, er hann hi’osti ástúð- lega til hennar, var þetta: „Lífið hef- ur nú vei’ið þér hliðhollt, Mai’ía, þrátt fyrir í,ilt“. Frú Maria var ljóshæi’ð, hörunds- björt með grá augu. Ennið var mikið og svipurinn álvarlegur og gáfuleg- ur. Hún var gröi.n vexti. Engurn duldist, er hitti þau hjónin í sam- kvæmum, að þar fór tigið fólk. María var friðleikskona, en lét sér ekki jafn annt um útlit sitt og maður hennar. Ilún lifði einvöi-ðungu fyx-ir vísindi sín og heimili jöfnum höndum. Eftir hið geysilega afrek, sem frá Curie innti af hendi i heixnsstyrjöld- inni 1914—18 og áður er getið, varð hún ekki einungis að annast umfangs- mikið kennslustarf í Soi’bonne, hekl-

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.