Samtíðin - 01.05.1957, Qupperneq 23
SAMTÍÐIN
19
fyrir sig i fjósi og útihúsum. Hann var
kallaður kolan og grútarlampinn. Hann
var ekki fallegur. Einfaldi lampinn var
fíngerðari og svolitiS fallegri. Á honum
var látið loga í baðstofunni á kvöldvökun-
um. Hann hékk niður úr skammbitanum,
sem var uppi yfir bitanum. Ljósmaturinn
á honum var stundum þorskalýsi, stund-
um hákarlalýsi og stundum kannski sels-
lýsi, ef annað lýsi var ekki til.... Ljósa-
lýsið var geymt í selsmaga. Hann liafði
verið hertur og var með sivölum trétappa
i hálsinum. Yfir um hálsinn var bundið
band með lykkju á, sem maginn var látinn
hanga á. Á vetrin hékk hann vestanmegin
í baðstofugöngunum, rétt fyrir framan
stigann. Á sumrin bar minna á honum.
I>á var hann látinn lvanga í skuggalegum
krók í eldhúsinu. Selsmaginn hafði ein-
kennilegri áhrif á mig en flestir aðrir
hlutir á heimilinu. .. Svo kom oliulampi
ofan af Papós og með honum tíu potta
blikkdunkur, fullur af steinolíu og allur
silfurgljáandi. En ég gat -aldrei fundið
sál í honum cins og í selsmaganum.“
Hér er aðeins um að ræða upphaf
ævisögu, sem ætla má, að kunni að
verða mörg bindi. Raunar má kalla,
að höfundur liafi áður skráð sumt
þeirrar sögu, sem honum lá mest á
að segja. En dómur um þetta verk
verður ekki kveðinn upp, fyrr en því
er lokið. Ég vil enda þessar línur með
þakklæti fyrir ýmis skaftfellsk orð
og orðtök, sem höf. bregður fyrir
sig og sum eru með öllu ökunn mönn-
um, sem fæddir eru og upp aldir
vestar á Suðurlandi.
S. Sk.
Radartæki, Asdictæki, Dýptarmælar Dýpt-
armælapappír, Segnlbandstæki, Segnl-
bönd, Kvikmyndavélar, Útvarpsviðgerðir.
FRIÐRIK A. JÓNSSON
Símj 4135. Garðastræti 11. Reykjavík.
Akureyri
Framkvæmum
hvers konar
járniðnaðarvinnu fyrir
Sjávarú tvcg9
Iöwtaö
ag haadhúaaö
Seljum og útvegum
hvers konar efni-
vöru til málmiðnaðar.
Hverfisgötu 42, sími 82422.