Samtíðin - 01.03.1958, Blaðsíða 10
6
SAMTÍÐIN
Kvennaþæftir Samtíðannnar — l^itátjón 'lJreijja
★ TízkufréttiT handa karlmönnum
ÉG HEF mér til mikillar ánægju
orðið þess vör, að karlmenn lesa
kvennaþætti mína engu síður en kon-
ur, enda hafa sumir þeirra sent
mér bréf og hlýjar kveðjur, og ég
hef stundum fengið tækifæri til að
svara hér fyrirspurnum þeirra.
Hérna kemur svo í sem stytztu
máli Parísar-herratízkan, sem nú
er að ryðja sér til rúms: Vel klædd-
ur karlmaður klæðist í dag fötum
með ermum, sem eru víðar í hand-
veginn. Að framanverðu vottar fyrir
mitti, en ekki í bakið, sem er vítt.
Buxur eru þröngar og án uppbrota,
nema á samkvæmisfötum.
Vestin minnka stöðugt og eru far-
in að líkjast breiðu belti. Peysur,
sem karlmenn ldæðast við jakkaföt,
eru með 1—2 rifum í bakið.
★ Alltaf peningalaus
KVlÐAFULL skrifar: Kæra
Freyja. Ég er í sárri angist. Ég er
alltaf peningalaus, því að maðurinn
minn er svo nízkur við mig. Ég elska
hann takmarkalaust og vil allt fyrir
hann gera, en hann er alltaf að
rninnka við mig húspeningana. Samt
ætlast hann til, að ég hafi alltaf nóg
af öllu og er steinhissa, ef eitthvað
vantar. Það er eins og liann skilji
ekki, live ægileg dýrtíðin er og að
100 krónur eru ekki meira en 10 kr.
voru, þegar við giftum okkur. Þetta
skilningsleysi hans hefur angrað mig
svo mikið upp á síðkastið, að ég er
BUTTERICK nr. 8424 í stærðnnum 12
—18, fallegur síðdegiskjóll (marz-tízkan).
Efni: baðmull, silki — krep, rayon eða
ull. Snið fást hjá SÍS, Austurstræti og
kaupfélögunum.
Framleiðum kápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum frá
þelclctustu tízlcuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
SCÁPAW H.F. Laugavegi 35. — Sími 14278.