Samtíðin - 01.03.1958, Síða 12
8
SAMTÍÐIN
mót við hana, ef liann er hrifinn af
lienni. En er hræðsla þín ekki á-
stæðulaus? Er maðurinn þinn ekki
alveg eðlilega hændur að systur
þinni, sem er ung, falleg og kát?
Væri ég í þínum sporum, mundi ég
gleðjast með glöðum og ekki gera
neinar alvarlegar ráðstafanir, fyrr
en ég sæi fram á, að málin færu
að taka alvarlegri stefnu. Sjáðu, livað
setur. — Þín Freyja.
^ Kjörréttur mánaðarins
STEIKT NÝRU. Vel hreinsuð nýru
eru skorin i sneiðar og brún-
uð, lielzt í matarolíu. Stórum holla
af rjóma er hellt út á sneiðarnar og
þær síðan látnar sjóða við hægan
liita eftir þörfum, en rjóma bætt
út á þær eftir villd. Þegar nýrun
eru soðin, er hellt út á þau ætisvepp-
um, salti og ögn af sinnepi, sem
hrært hefur verið út í vatni og safa
af 1 sítrónu.
LJÚFFENGUR EFTIRMATUR —
225 g af súkkulaði eru brædd. 5
eggjarauður hrærðar með 1 msk af
flórsykri og vanillubragðbæti eru
látnar út í súkkulaðið og síðan hrært
vel í því. Svo er bætt út í það 3% dl
af þeyttum rjóma og þeyttum eggja-
hvítum. Rétturinn er skreyttur með
steiktum möndlum og þeyttum
rjóma.
ÞÚSUNDIIt kvenna og karla lesa
kvennaþætti Samtíðarinnar með vaxandi
athygli. — Sendið okkur áskriftarpöntun-
ina neðst á bls. 32 strax í dag, og við póst-
aendum yður blaðið tafarlaust ásanit ein-
um eldri árgangi í kaupbæti.
Draumaráðningar
• UNNUSTI. Það er venjulega
fyrir leiðindum, ef konur eða karla
dreymir trúlofun sína.
• VINNA. Venjulega er það fyr-
ir hagnaði, ef mann dreymir, að liann
sé að ráða fóllc í vinnu.
• BRUNI. Það er mönnum fyrir
mjög gæfurikri framtíð, ef þá dreym-
ir, að þeir brenni sig.
• AULABÁRÐU R. Það veit á
veraldlega velgengni, ef menn dreym-
ir, að þeir hagi sér eins og aular eða
skynskiptingar.
• HLÁTUR. Það er yfirleitt ills
viti, ef menn dreymir hlátur. Sértu
sjálfur að lilæja, áttu von á sárum
vonbrigðum og mæðu, oftast vegna
ótryggðar. Hlátur er elskendum fyrir
tárum. Ofsafenginn hlátur vina i
draumi veit á, að vinátta þeirra fer
von bráðar i liundana.
FRÆGIR ORÐSKVIÐIl*
Vinnan er gæfa ógæfumannsins.
Mannþekkjarinn verður að hafa
gott hjarta, ef hann vill vera mann-
vinur.
Spakmælin eru krydd ræðunnar.
Samvizkan er rödd Guðs; skyn-
semin rödd mannsins.
Frjálsræði undir góðri stjórn er
skynsamlegasta frelsið.
Raflagnir. — Viðgerðir.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
RAFTÆKJAVINNUSTOFA
ÞORLÁKS JÓNSSONAR H.F.
Grettisgötu 6. — Sími 14184.