Samtíðin - 01.03.1958, Blaðsíða 15

Samtíðin - 01.03.1958, Blaðsíða 15
SAMTÍÐIN 11 Hún spratt á fætur, þreif hatt sinn og tösku og skundaði heim að hús- inu. Dju’nar út að svölunum stóðu opnar, og hún gekk hljóðlega inn um þær, til þess að ungfrú Ölsen skyldi ekki verða hennar vör. Það var búið að leggja á borðið í borðstofunni. Að- ur en varði, var hún farin að læð- ast á tánum gegnum stofurnar .... eins og liún væri þjófur, óboðinn gestur. Og allt í einu, í þessu uppnámi hugarins, heyrði hún rodd augnlækn- isins: „Farið nú varlega, frú mín góð. Það er maðurinn yðar, sem ég er að hugsa um .... “ Hún var undarlega umkomulaus, þegar hún loks kom inn í svefnher- hergið. Hvers vegna hafði hún læðzt inn á sitt eigið heimili, eins og hún ætti ekki með að koma þangað? Hún andvarpaði, settist við búningsborðið sitt og fór að greiða sér. Nei, gler- augun fóru henni ekki vel .... Hún var ellilegri í sjón, þreytuleg. En samt sem áður tók hún ekki of- an gleraugun. I stað þess fór liún að grannskoða andlit sitt í stóra hornspeglinum. Drottinn minn dýri! hún var þá bæði hrukkótt á enn- inu og kringum augun........Þessi hjáni, hún ungfrú Lund, nuddkon- an, var sjálfsagt of liarðhent á hör- undi hennar. Hún skyldi sannarlega ekki oftar fara til hennar „Húðin á yður er eins og á ungri stúlku,“ var hún alltaf vön að segja, bölvuð tóf- an sú arna! Hún leit álasandi á sjálfa sig. Var þarna ekki grátt hár við gagnaugað á henni? Jú, fleiri en eitt .... Hún lagði frá sér greiðuna, með- an þreytan gagntók hana. Svo fól lnin andlitið í höndum sér og sat þannig .... án þess að hreyfa legg eða lið. Hún hrökk við, er hún heyrði fóta- tak fyrir aftan sig. Tómas var þá kominn heim. Rödd hans var á- hyggjufull: ’ „Er nokkuð að þér, væna mín? Ertu þreytt?“ Hún hristi höfuðið og sneri sér að honum. Hann brosti vingjarnlega til hennar. En hvað hún var falleg með þessi stóru gleraugu. En hún sagði ekki aukatekið orð, sat bara þarna og horfði á hann. En hvað hún þekkti vel andlit hans með djúpu hrukkunum, en samt var eins og hún kæmi nú auga á.eitthvað, sem áður hafði verið henni hulið. Það hafði alltaf verið þarna .... það vissi hún fullvel, en hún hafði bara ekki verið fær um að veita því við- töku: þessari óendanlegu góðvild hans .... Svo var eitthvað, sem brast í henni. Áköf teygði hún handleggina í átt- ina til hans. „Tómas,“ allt að því hrópaði hún. „Þetta getur ekki haldið svona á- fram. Ég verð .... “ Hún snarþagnaði. Það var eins og lífið hyrfi úr andliti Tómasar. Hann liörfaði eitt skref aftur á bak, en þegar liann tók loks til máls, var rödd lians róleg og stillt: „Ég skil þig mætavel, Ingiríður. Mig hefur grunað þetta, en ég hef bara látið sem ekkert væri. En þú ert auðvitað laus, þegar þú vilt . .. . “ Hann sneri sér hægt við. I kyrrðinni heyrði hún, hve þungt honum var

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.