Samtíðin - 01.03.1958, Side 16

Samtíðin - 01.03.1958, Side 16
12 SAMTÍÐIN um andardráttinn. Ilún lét handlegg- ina síga. Hann vildi sleppa öllu til- kalli til hennar .... Hún gæti bara farið leiðar sinnar. Hún néri saman höndunum. Þá sá hún í leiftursýn andlit hans í speglinum. Það var náfölt og kvala- merkt, og það komu' annarlegir drættir kringum munninn. ,/), Tómas!“ sagði liún, um leið og hún reis úr sætinu og staðnæmd- ist fyrir framan hann. Ég er allt of frjáls. Sviptu mig þessu frelsi, Tóm- as. Sviptu mig því .... Ég .... “ Gráturinn har hana ofurliði. Hann leit á hana agndofa. Eitt- hvað hafði gerzt, eitthvað, sem hann botnaði ekkert í. En hvað kom það málinu við? Ekkert í öllum heimin- um gat haggað þessari staðreynd: Að hún lagði algerlega ótillcvödd hendurnar um liáls honum og kyssti hann, meðan tárin streymdu niður kinnar hennar. Segulbönd em mikill friðarboði á heimilum. Þeir, sem hlustað hafa á rifriidi á þeim, fá áreiðanlega nóg af svo góðu. Fræg leiklcona spurði Albert Ein- stein, hvernig heimurinn hefði orðið til. „Það hef ég ekki minnstu hug- mynd um,“ anzaði Einstein, „því ekki var ég þar viðstaddur.“ önnumst allar myndatökur bæði á stofu og í heimahúsum. STUDIO Laugavegi 30, Sími 19-8-49. MÁTTUG ORÐ * DAGLEGAR BÆNIR til Guðs eru hezta heilsuvernd mannkynsins. — Dr. T. Bulkey. ^ í SNERTINGU við ást verða menn skáld. -— Plato. ^ TALAÐU VEL UM óvini þina; mundu, að það varst þú, sem skap- aðir þá. AUÐVITAÐ eigum við að gefa meiri gaum að framtíð en fortíð, því að þar verðum við það, sem eftir er ævinnar. ^ SUMIR HALDA, að þeir séu svo mikils virði, af því að þeir eiga mikil verðmæti. — Spænskt orðtak. $ VEL KVÆNTUR maður er gæfumaður, jafnvel þótt allt annað bregðist lionum. „Eg fór í dag til læknis til að leita ráða við þessu voðalega minnisleysi, sem ásækir mig í seinni tíð.“ „Og hvað gerði hann?“ „Lét mig borga fyrirfram.“ Austurbæingur fór á hverju kvöldi til eklcju vestur í bæ. „Af hverju giftistu henni eklci hreinlega?“ spu^ði einn af vinum hans. „Hvar ætti ég þá að eyða lcvöld- unum?“ spurði Austurbæingurinn. IVEUNIÐ Nora Magasín

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.