Samtíðin - 01.03.1958, Blaðsíða 17

Samtíðin - 01.03.1958, Blaðsíða 17
SAMTÍtílN 13 TÍZKiiSÖIMGVARIIMIM TOMMY STEELE RÖSKIR 16 mánuðir eru liðnir, síð- an eldflaug ensks skemmtanalífs, Tommy Steele, var skotið upp í há- loft frægðarinnar. Þegar hann liafði sveimað þar árlangt, námu tekjur þær, sem stjórnandi hans gaf upp til skatts fyrir hönd lians, um 3 millj. 72 þús. isl. kr. á skráðu gengi. Áð- ur höfðu vitanlega allir útverðir pilts- ins, sem hagnazt gátu af frægð lians, svo sem: umboðsmenn hans, for- leggjarar, áróðursmenn, hugsuðir, hópur fagurra einkaritara, ljósmynd- arar, lífverðir, textahöfundar, radd- setjarar, umsjónarfólk skemmtan- anna, grammófónplatnaútgefendur, kvikmyndafólk, hárskeri söngvarans o. fl. fengið sitt. Brezka útvarpið, BBC, minntist þess sl. haust, að rétt ár var þá lið- ið, frá því að Tommy sló í gegn hjá því, með því að ætla lionum hvorki nieira né minna en rúman klukku- tíma í sjónvarpsdagskrá sinni. Þeir voru víst fáir, sjónvarpsnotendur á Bt'etlandseyjum, sem skrúfuðu fyrir tæki sín það laugardagskvöld. Samt hefur þessi piltur úr fátækrahverfinu East End í London ekki öllu meiri raddstyrk en miðlungskvenmaður (segjum Marlene Dietrich), og gítar- spil sitt, sem er óaðskiljanlegt rödd hans, hefur liann aðeins numið af hálfgerðum viðvaningi í sjúkrahúsi einu í London. Um starf sitt kemst Tommy svo að orði „Ég hef þrælað, meðan aðrir strákar gengu berserks- Sang um göturnar.“ Þegar liann syngur og spilar undir á gítarinn sinn, fer allt ungviði, sem á liann hlustar, að gala og vagga sér, eins og það væri dáleitt af afríkönsk- um galdrameistara. Og Tommy kann hlutverk sitt, því að fáum andartök- um eftir að hann upphefur rödd sína, eru allar telpur orðnar svo frá sér numdar, að þær vita hvorki í þennan heim né annan. Þannig hefur það gengið til í Bretlandi þessa 16 frægð- armánuði. Og þegar Tommy söng og spilaði í Kaupmannahöfn, Stokk- hólmi og Osló, fór allt á sömu leið. 'fc Heimsfrægur á þrem mínútum Það var haustið 1956, að Tommy Steele (fæddur Hicks) var fiskaður upp úr fátækraliverfinu í Austur- London. Einn af forráðamönnum BBC hafði eftir ákafar umleitanir náðarsamlegast leyft, að Tommy, sem enginn vissi þá nein deili á, mætti reyna sig þrjár mínútur í sjónvarp- inu. Daginn eftir bárust Tommy 700

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.