Samtíðin - 01.03.1958, Page 19

Samtíðin - 01.03.1958, Page 19
SAMTÍÐIN 15 „Hann getur aldrei útskýrt neitt, aldrei fært rök fyrir neinu, sem hann er að hugsa um. En hann veit, að hverju honum geðjast og livernig hann vill, að það sé,“ segir andi nr. 2. Æfingin heldur áfram. Ný lög eru prófuð. Mikið er talað um „góða sál- fræði, lélega sálfræði“ o. s. frv. Og loks er kallað: „Þetta er nóg í dag!“ ★ Hús handa mömmu og pabba Æfingunni er lokið, og Tommy liefur 5 mínútur til að sinna blaða- mönnum. Síminn hringir. Það er mektarmaður, sem árangurslaust hefur verið að reyna að ná tali af söngvaranum í samfleytt 13 daga. „Segið honurn, að ég sé á blaða- mannafundi og hafi engan tíma til að sinna honum,“ segir Tommy. Söngvarinn hefur á þessu fyrsta frægðarári sínu keypt fallegt, nýtt íbúðarhús handa foreldrum sínum, en þeir höfðu, frá því hann fæddist, búið í óvistlegu greni niðri við skipa- kvíarnar. Einnig hefur hann keypt sér ítalskan viðhafnarbil, flogið til Frakklands i sumarleyfi sínu með einn af einkariturum sínum, stutt yngri bróður sinn f járhagslega, keypt stórgjafir lianda fólkinu sínu. „Ég er alltaf þessi sami og jafni Tommy Hicks, sem bjó í Austur-Lon- don og spilaði í kaffihúsunum og kjallara-klúbbunum“, er vanavið- kvæði hans. Rokkið? Æ, talið þið ekki um það. Ég er nú þannig á vegi staddur, að ég er alls eklíert upp á það kominn,“ segir hann og leggur áherzlu á orðin. „Síðan 1. apríl hef- ur áróðursmaður minn ekki minnzt á rokk. Það orð er algerlega bann- fært — sem sagt alveg úr sögunni. Hvað fortíð minni viðvíkur, segi ég: Þið getið bara keypt ævisögu mína. Hún kostar 2 og 6 og selzt eins og volgt brauð. Þar stendur allt um mig, sem máli skiptir. Eða farið þið og sjáið Tommy Steele kvik- myndina." Hann talar eins og afbragðs sölu- maður: „Framtíðaráform mín! Ég byrja innan skamnis að leika aðal- hlutverk — hertoga — í kvikmynd. Síðan fer ég til Suður-Ameriku og Ástralíu. Ég á að sýna látbragðslist í Liverpool. Þangað verða allir boðn- ir, sem liafa sent mér línu innan 100 km fjarlægðar frá borginni. Ég hef duglega áróðursmenn,“ segir hann á Lundúnaslangi sínu og bros- ir öðru hverju — oftast vingjarnlega. Frægð mín er eins og hús Öi-lagavaldurinn Bevan segir: „Tommy er bezti drengur! Mér þyk- ir vænt um hann.“ Bezti drengur. Ætli það sé ekki sanngjarn dómur. En frægðin hefur auðvitað stigið honum nokkuð til höfuðs, svo að stundum hefur hann jafnvel sundlað. Og þá vaknar spurn- ingin: „Hvenær fellur þessi gervi- máni (sputnik) frægðarinnar til jarðar. Um það hefur Tommy sjálf- ur enga hugmynd. „Frægð mín er eins og hús,“ segir hann. „Ég hef vérið að leggja grunn- inn að þvi í heilt ár og haft liann traustan. Næst er að reisa stálgrind og múra, og síðan kemur þakið. Ef til vil legg ég aldrei þakið. Og hver veit, nema ég verði að rifa húsið til grunna og byggja á ný!“

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.