Samtíðin - 01.03.1958, Síða 21

Samtíðin - 01.03.1958, Síða 21
samtIðin 17 föngulegur, spilaði á píanó, söng vel, spilaði bridge og lék tennis, var bráð- fyndinn í svörum, prýðilega klæddur og liafði alltaf skítnóga peninga til að eyða í það kvenfólk, sem hann var með í þann og þann svipinn. Þó að Georg þætti stundum nóg um fleðulætin i Dennis Rowley og fyndist þau fram úr liófi keyrandi, liafði hann fyrir sitt leyti látið þau sér í léttu rúini liggja. Nú skynjaði bann mikilvægi þessara smámuna. Þau lijónin höfðu bæði gaman af gleðskap og vildu gjarnan láta það eilthvað heita. Þau léku tennis, þegar gott var veður, spiluðu hridge, þegar veðrið var vont. Við öll þessi tæki- færi virtist Dennis æði oft vera mót- leikari Evu. Hvar sem liún var stödd í samkvæmi, var þessi náungi óðara þar kominn. Og alltaf virtist liann vera á hælunum á henni. Fólki gat elcki dulizt þvílíkt og annað eins. Georg mundi eftir sögum, sem kona lians hafði sagt lionum, þegar hann liafði komið heim úr verzlun- arferðum, skopsögum og kjaftasög- um. Hann heyrði óðara, hvaðan þær voru komnar — frá Dennis Rowley. Það var annars alveg hatramlegt, að maður skyldi ekki mega hregða sér að heiman einn eða tvo daga, án þess að einhver drullusokkur væri farinn að hundelta konuna manns! Eða það, sem verra var: að hún skyldi vera farin að elta hann! Auðvitað komu gestir til konu hans, meðan hann var að heiman. Hvað annað? Hún fór líka í hoð. Hann frétti, að hún hefði verið í híó. Það hefði getað vakið honum grun. Eva var oft að minnast á kvik- myndir, og kom þá á daginn, að hún hafði séð allt aðrar myndir en vinkonur hennar. Af þessu mátti ráða, að hún hefði ekki farið í híó með þeim. Með hverjum hafði hún þá farið? Svarið kom alveg ósjálf- rátt: með Dennis Rowley. Auðvitað ræsti Eva íbúðina, eftir að hún hafði fengið gesti, sem trú- legast voru konur, grannkonur, sem maður hennar þekkti. Engu að síður fannst Georg hann finna annars kon- ar reykjarlykt en af sígarettunum, sem hann var sjálfur vanur að reykja. En konur reyktu nú líka, og sum- ar þeirra höfðu ef til vill komið með menn sina með sér til að slá í bridge. Hver vissi, nema konu hans fynd- ist hún liafa fullmikið að gera. Ef til vill saknaði hún þess að eiga ekki hörn eða þjáðist af of mikilli ein- veru. Hið siðastnefnda var nú næsta broslegt. Yfirleitt var hann aldrei lengur að heiman en eina nótt í viku. Hann þekkti konur, sem urðu að sætta sig við meira einlífi en það. í nótt ætlaði liann að gera upp við liana sakirnar. Hann gat ekki sætt sig við að lifa í þessari óvissu fram- ar. Ef Eva væri honum ótrú, mundi hún og friðill hennar hrosa í laumi að fávizku lians. Ilið sama myndi annað fólk gera, eins og fram kom í orðum tóhakssalans. Hann ætlaði að hreyta um ferðaáætlun, koma við lijá viðskiptamönnum í grenndinni, í stað þess að fara í langferð, eins og hann liafði ætlað sér. Þennan dag fór Georg Dursell hringferð um þorp og smábæi. Hann hélt áfram ferð sinni, þar til búðum

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.