Samtíðin - 01.03.1958, Qupperneq 22
18
SAMTÍÐIN
var lokað um kvöldið, en varð að
eyða nokkrum klukkutímum eftir
það. Hann ók þá liægt og gætilega
og sneiddi hjá borgum og fjölförn-
um vegum. Um níuleytið nam hann
staðar til að fá sér kvöldverð. Rétt
fyrir klukkan tíu staldraði hann við
í krá til að fá sér einn lítinn. Eftir
það ók hann bílnum í mestu hægð-
um sínum. Klukkan var því orðin
ellefu, þegar hann kom til borgar-
innar, þar sem liann átti lieima, hálf
tólf þegar hann stöðvaði hílinn í
hliðargötu rétt hjá strætinu, sem
liann bjó við.
Þaðan labbaði liann hljóðlega að
framdyrunum á húsi sínu. Hvergi
var ljós í gluggum. Hann varð grip-
inn eftirvæntingu, þegar liann stakk
lyklinum í skráargatið. Öviljandi
hafði Eva ekki skilið dyrnar eftir
ólæstar og án þess að skjóta slag-
brandinum fyrir hurðina. Það var
ótrúlegt, að hún hefði gleymt því,
þar sem hún var alein í húsinu og
þurfti þar af leiðandi á vernd að
halda. Maðurinn gekk þegjandi upp
á loft. Þegar hann staldraði við fyrir
utan dyrnar á svefnherbergi sinu,
heyrði hann hvíslandi raddir og
hlátur.
Georg hratt upp svefnlierbergis-
hurðinni, kveikti ljósið og skundaði
að lijónarúminu. Iíona hans rak upp
óp, reis upp í rúminu og sveipaði
að sér rúmfötunum. En þó að hún
lyfti lökunum og ábreiðunum, dukl-
ist ekki, að maður lá við hlið henn-
ar í rúminu. Eva leit á mann sinn
með skelfdu, biðjandi augnaráði, en
hann þreif i rúmfötin og svipti þeim
ofan af þeim.
Þarna lá Dennis Rowley. Hræði-
legt andartak leið, og ekkert þeirra
hreyfði hönd eða fót, nema hvað Eva
titraði öll. Maður hennar stóð þarna
og starði á skötuhjúin. Oft furðaði
hann sig á því síðar, að hann skyldi
ekki beita ofþeldi. 1 þess stað varð
hann gripinn djöfullegum galsa.
Hann rak upp snöggan hlátur. Svo
stikaði liann út að glugganum og
opnaði neðri rúðurnar. Því næst
þreif hann rúmfötin og þeytti þeim
út á flötina fyrir framan liúsið. Hann
glotti, þegar hann sá, hvar föt manns-
ins og konu hans lágu á stólum.
Hann seildist eftir þeim ásamt nátt-
fötum konu sinnar og greiðslusloppi
og senti öllu saman út um gluggann
á eftir rumfötunum.
Um leið og hann gekk sigri hrós-
andi og hlæjandi út úr lierberginu,
sneri liann lyklinum í skránni og
læsti dyrunum að utanverðu. Svo
þaut hann niður stigann, skildi úti-
dyrnar eftir opnar og hljóp út á
götuhornið. Þar var símaklefi. Það-
an hringdi Georg Dursell í skyndi
á slökkviliðið, sjúkrabíl og lögregl-
una og gleymdi aldeilis ekki að segja,
hvert þeir ættu að koma. Svo labb-
aði hann í hægðum sínum og svo
að lítið bar á um götuna til að sjá,
hverju fram yndi.
ÞEIM FJÖLGAR daglega, sem lesa Sam-
tíðina. Sendið okkur áskriftarbeiðnina á
bls. 32 og þér fáið árlega 10 hefti fyrir að-
eins 55 kr. og 1 eldri árgang í kaupbæti.
Radarta-ki, Asdictæki, Dýptarmælar, Dýpt-
armælapappir, Segulbandstæki, Segul—
bönd, Kvikmyndavélar, Útvarpsviðgerðir.
FRIÐRIK A. JÓNSSON
Simi 1-41-35. Garðastræti 11. Reykjavík.