Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Qupperneq 3
1914—1934
AFMÆLISBLAÐ VERKAKVENNAFJELAGSINS FRAMSÓKN
3
fjelagsstjórnin tal við nokkra helstu
atvinnurekendur um kauptaxta fje-
lagsins, og tóku flestir þeirra vel
undir það, að greiða kaup eftir
taxta fjelagsins. Mun taxtanum hafa
verið fylgt alment um vorið og
sumarið, þótt vafningar og undan-
færslur ættu sjer stað á einum eða
tveimur stöðum. Hinu sama fór
fram árið eftir, 1916, að ekki varð
verulegur ágreiningur um kaupið,
og taxla Framsóknar mun liafa
vcrið fylgt yfirleitt.
Á þessum árum fór dýrtið vax-
andi hröðum skrefum. í ársbyrjun
1917 gerði fjelagið fundarsamþykt
um breytingar á „aukalögunum“ og
liækkaði taxtann til muna. Dag-
kaup var ákveðið 40 aur. um klst.,
eftirvinna 50 aur. og nætur- oe
lielgidagavinna 75 aurar.
Þetta var tilkynt útgerðarmönn-
um. En þeir tóku þvert fyrir að fall-
ast á þenna taxta, en buðust til að
semja um miklu lægra kaup.
Á fjelagsfúndi 28. jan. var málið
rætt, og komust konur að þeirri nið-
urstöðu, að ákvörðun fjelagsins
mundi ekki einhlít, og samningar
voru óhjákvæmilegir. Fól fundurinn
stjórninni að senija við útgerðar-
menn um kaupið.
Eins og vænta mátti náðu konur
ekki því sem þær fóru fram á, en
gengu að samkomulagi um nokkuð
lakari kjör. Var samningur gerður
og undirritaður fyrstu dagana i fe-
brúar.
Með þvi að þetta var fyrsti samn-
ingur um kaup, sem verkakonur
hafa gert við atvinnurekendur, þyk-
ir lilýða að birta liann hjer orð-
réttan:
KAUPTAXTI
verkakvennafjelagsins „Framsókn",
samkvæmt samningi við
atvinnurekendur:
A samningsvinnu:
1. Fyrir að þvo 100 af þorski
og löngu ................ 0,90
2. Fyrir að þvo 100 af upsa . . 0,70
3. Fyrir að þvo 100 af ísu og
smáfiski ................ 0,65
4. Fyrir að þvo 100 af Labra-
dor ..................... 0,35
Tímavinna á virkum dögum:
Frá 6 árd. til 6 síðd.........0,36
— 6 síðd. til 8 siðd...... 0,42
— 8 síðd. til 6 árd........0,70
Á helgum dögum og sumar-
ardaginn fyrsta i þurrum fiski,
nema upp og útskipun ........ 0,65
Við aðra vinnu á helgum . . 0,70
Vikukaup, frá 6 árd. til 6 síðd.:
Án venjulegra hlunninda . . . 21,00
Með venjulegum hlunnindum 18,75
Sé unnið eftir kl. 6 síðd. er tima-
borgun eins og að ofan greinir.
Taxti þessi gildir frá 1. febr. til
31. des. 1917.
Vegna þess, að ckki verður kom-
ið við að nefna annað en höfuð-
atriðin í þessu stutta yfirliti verður
hér á eftir skýrt frá dagkaupi, eft-
irvinnu og lielgidagavinnu og samn-
ingsverði um þvott á þorski (stór-
fiski).
Þetta kaup, sem um var samið
1917, Iijelst óbreytt árið eftir (1918).
í ársbyrjun 1919 var samþ. að
fara fram á verulega kauphækkun,
og fóru brjefaskriftir um það milli
fjelagsstjórnarinnar og útgerðar-
manna. Fóru konur fram á 60 aur.
um klst. og kr. 1,50 fyrir 100 af
þorski. Útgerðarmenn vildu að vísu
liækka kaupið, en ekki nærri svo
mikið, sem konur fóru fram á.
Á fjelagsfundi 24. apríl fjekk
stjórnin umboð til að scmja við út-
gerðarmenn, og var samningur und-
irritaður 30. april. Samkv. honum
var kaup ákveðið þannig:
Dagkaup 55 aur. á klst.
Eftirvinna, sunnud.- og helgid.v.
80 aur. á klst.
Fyrir 100 af þorski kr. 1.40
Þessi samningur gilti að eins fvrir
]iað ár. í byrjun næsta árs (1920)
l.eitaði stjórnin á ný samninga við
atvinnurekendur og fór fram á
mikla kauphækkun vegna þeirrar
dýrtíðar, sem þá var orðin. Útgerð-
armenn vildu að visu hækka kaup-
ið, en að eins i lilutfalli við dýrtið-
arvísitölur Hagstofunnar. Var í
byrjun apríl samið um 85 aura tíma-
kaup til bráðabirgða, þar til út-
reikningar Hagslofunnar á vísitölu
lægju fyrir. Þeir reikningar voru
Jagðir fram siðar á vorinu. Breytt-
ist kaupið samkv. þeim í 97 aur. um
klst., eftirvinna og lielgidagavinna
kr. 1,10 og aðrar greinir kauptaxl-
ans nokkurnveginn i hlutfalli við
það.
Á útmánuðum 1921 liófst enn
þref um kaupgjaldsmálið. Atvinnu-
rekendur fóru fram á mikla kaup-
Jækkun og kusu nefnd úr sínum
lióp til samninga við stjórn Fram-
sóknar. Buðu atvinnurekendur 70
aur. um klst. og 20 aur. liærra kaup
i eftirvinnu. Þessu neitaði stjórnin.
Bauðst hún til að ganga að veru-
legri lækkun á dagkaupi, en eftir-
vinnu- og helgidagakaup hjeldist ó-
breytt. Á fjelagsfundi 28. apríl ti 1-
kynti stjórnin að samningatilraun-
ir hefðu engan árangur borið, og
gagnslaust að reyna frekar þá að-
ferð.
Fundarkonur neituðu einum rómi
tilboði atvinnurekenda, en ákváðu
að setja sjálfar kauptaxta, hvað
sem atvinnurekendur segðu eða
gerðu: 80 aur. um klst. i dagvinnu
og kr. 1,10 i eftirvinnu og kr. 2,00
fyrir 100 af þorslci. Þessi taxti var
samþyktur á fundinum og auglýst-
ur strax á eftir.
Svo ákveðnar og einhuga voru
vcrkakonur i þessu máli, að at-
vinnurekendur gugnuðu f'yrir og
greiddu kaup eftir taxta Framsókn-
ar, ekki að eins þetta ár, heldur
líka næstu 2 árin, 1922 og 1923.
Seinni hluta vetrar 1924 fóru
verkakonur fram á kaupliækkun,
upp í 90 aur. á klst., og leiluðu sam-
komulags við atvinnurekendur um
það. Stóð í samningaþófi um þetta
all fram i maílok. Árangurinn varð
elcki annar en sá, að ákvæðisvinna
í fiskþvotti hækkaði lítið eitt, 100
af þorski kr. 2.25.
Árið eftir, 1925, átti fjelagið enn
í samningum við atvinnurekendur,
og náði þeim árangri, að dagkaup
var hækkað upp í 90 aur. á klst.
Annað óbreytt.
Snemma í janúar 1926 fóru fram
umræður milli atvinnurekenda og
fjelagsstjórnarinnar i tilefni af því,
að atvinnurekendur höfðu krafist
mikillar kauplækkunar. Buðust
þeir til að borga 80 aur. í dagvinnu,
kr. 1.10 í eftirvinnu og kr. 2.00 l'yrir
100 af þorski. Þessu tók stjórnin
fjarri, og sama gerðu verkakonur á
fjelagsfundi 21. jan.
Var nú haldið áfram samninga-
tilraunum. I byrjun febrúar var svo
komið, að fjelagsstjórnin hafði
gengið inn á 85 aur. dagkaup, og
atvinnurekendur höfðu hækkað á-
kvæðisvinnu upp i kr. 2.20 á 100 af
þorski. En mikið vantaði á að sam-
an gengi, og var málinu þá vísað til
sáttasemjara í vinnudeilum.
Á fjelagsfundi 18. febr. var til-
kynt að samningaumleitanir sátta-
semjara hefðu engan árangur borið.
Það slceði þessu næst, að atvinnu-
rekendur sendu út meðal verka-
kvenna prentað tilboð um kaup, til
undirskriftar, og gerðu með því til-
raun til að sundra samtökum
verlcakvenna með því að fá eina og
eina til að undirskrifa skjalið. Þetta
tilboð var rætt á fjelagsfundi 4.
mars, og samþykti fundurinn með
169 atkv. gegn 3 að hafna tilboðinu.
Þá var á fundinum samþyktur
kauptaxti, sem stjórnin birti i blöð-
um daginn eftir. Helstu ákvæði
hans voru þessi:
Dagkaup 85 aur. um klst.
Eftirvinna kr. 1.00 um klst.
Nætur- og sunnudagavinna kr.
1.25 um klst.
Þvottur á þorski kr. 2.20 á 100.
Konur skyldu hafa karlmanna-
kaup ef þær væru látnar fara um