Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Qupperneq 5
1914—1934
AFMÆLISBLAÐ VERKAKVENNAFJELAGSINS FRAMSÓKN
5
Maria Pjetursdóttir.
Herdís Símonardóttir.
Jólianna Jónsdóttir.
fund og tilkynti henni þá ályktun
sína, að Dagsbrún skyldi hefja sam-
úðarverkfall að morgni næsta dag.
Jafnframt tilkynti sambandstjórn-
in að hún liefði skipið 3 menn í
verkfallstjórn og 3 menn í samn-
inganefnd.
Þá krafðist sambandsstjórn þess,
að Dagsbrún stöðvaði alla vinnu
við togara, sem kæmu af fiskiveið-
um.
Að morgni 16. mars mætti öll
stjórn Dagsbrúnar á liafnarbakkan-
um kl. 5% og stöðvaði vinnu við
alla togara og önnur fiskiskip, sem
komu af veiðum.
Verkfallsverði setti Dagsbrún
nótt og dag.
Þann 17. mars barst sambands-
stjórn svoliljóðandi hrjef frá Fje-
lagi íslenskra botnvörpuskipeig-
enda:
„Vegna samþyktar Alþýðusam-
bands íslands, samanber tilkynn-
ingu til fjelags vors dags. 15. þ. m.
um að stöðva uppskipun úr togur-
unum. hefur fjelag vort samþykt
að stöðva frá kl. 6. e. h. á morgun
alla hafnarvinnu hjer í Reykjavík
við upp- og útskipun á kolum þeim
og salti, sem fjelagsmenn ráða yfir,
nema þvi að eins, að oss hafi innan
þess tíma borist tilkynning frá yð-
ur um að lokið sje tilraunum yðar
til að stöðva vinnu við togarana".
Deilan liarðnar nú dag frá degi.
Verkbann við skip var látið ná til
Viðeyjar og Hafnarfjarðar, og veitti
ýmsum betur. Er ekki rúm til að
skýra nánar frá atburðum hjer.
Að morgni 22. mars bannaði
stjórn Dagsbrúnar alla vinnu við
Reykjavíkurhöfn, eftir skipun sam-
handsstjórnar kvöldið áður.
Meðan þessu fór fram voru
reyndir samningar við útgerðar-
menn. En þeir tóku f jarri að ganga
inn á samkomulag. Vildu þeir snúa
sókn sinni á liendur Dagshrún og
heimta einnig kauplækkun þar.
Horfurnar voru nú orðnar frem-
ur ískyggilegar. Dagsbrún var illa
viðhúin að mæta löngu verkbanni,
ef því yrði lýst yfir, eftir að hafa
staðið i samúðarverkfalli alllangan
tíma. Stjórn Sjómannafjelags
Reykjavíkur treystist ekki að fyrir-
skipa samúðarverkfall í því fjelagi.
Að lokum var það ráð tekið, að
ganga inn á samninga við atvinnu-
rekendur um kaup kvenna, þótt
ekki næðust svo góð kjör, sem kon-
ur höfðu farið fram á, og þá með
þvi skilyrði, að ekki yrði haggað við
kaupi verkamanna.
Samningur var gerður að kvöldi
26. mars, og undirritaður af for-
seta Alþýðusamhandsins f. li. sam-
bandsstjórnar.
Samkv. þeiiii samningi var kaup
ákveðið þannig:
Dagkaup 80 aur. á klst., eftir-
vinna kr. 1,00, nætur- og helgidaga-
vinna kr. 1,10. Þvottur á þorski kr.
2,10.
Ástaug Jónsdóttir.
Sigriður Ólafsdóttir.
Steinunn Þórarinsdóttir.