Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Qupperneq 10

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Qupperneq 10
10 AFMÆLISBLAÐ VERKAKVENNAFJELAGSINS FRAMSÓKN 1914—1934 í Reykjavík en nú, þó geysimikið standi á þessn sviði ennþá til bóta. En svo jeg snúi mjer nú að verka- kvennafjelaginu Framsókn, þá man jeg ekki eftir neinu máli, sem veru- lcga hefur skipt fyrir Alþýðuflokk- inn, og þar með hag alls verkalýðs- ins á Islandi, án þess að verkakon- urnar liafi átt mikinn þátt í því. Alt- af liefur verið gengið að því sem vísu, þegar óeigingjarnt og fórnfúst slarf var nauðsynlegt, að ekki stæði á meðlimum verkakvennafjelagsins Framsókn, enda liefur það aldrei brugðist. Þeir, sem fylgst hafa með i starfi Alþýðuflokksins, vita því hve mikið af því heillaríka starfi, sem hann hefur unnið, er að þakka verkakvennafjelaginu Framsókn. Ó. F. Herðum sóknina I dag minnast verkakonur 20 ára afmælis fjelags síns. Sjálfsagt fer það nokkuð eftir skapgerð hverrar einstakrar konu á hvern hátt liún minnist afmælis- ins og fjelagsins. Margar konur munu fyrst og fremst hugsa um baráttuna, erfiðleikana, andstreym- ið. Hugsa um fyrstu árin þegar fje- lagið var veikt og vanmáttugt og varð að biðja í stað þess að Icrefjast. Hugsa um liðsmennina sejn brugð- ust skyldum sínum og hurfu úr hópnum. Hugsa um takmörkin sem ekki var liægt að ná, áformin sem ekki var hægt að framkvæma. Aðrar munu fyrst og fremst minnast hjörtu hliðanna. Minnast þess hvernig alt hefur þó „þokast i áttina“ á þessum 20 árum. Minn- ast sameiginlegra átaka, sameigin- legra sigra. Minnast ánægjulegrar samvinnu, skemtilegra samveru- stunda og fjelgslegs þroska sem starfið hefur veitt. Og ekki mun því með rjettu verða mótmælt, að allar þær konur sem unnið hafa að vexti og viðgangi fje- lagsins liafi ástæðu til að gleðjast vfir því, sem fjelaginu hefur ágengt orðið. Til þess að sjá það þarf ekki ann- að en lesa það ágrip af sögu f jelags- ins sem skráð er hjer að framan. En fljótlegast mun þó vera að gera sjer grein fyrir gildi fjelagsskaparins, með því að hugsa sjer að ekkert verkakvennafjelag hefði starfað hjer öll þessi ár. Hvað væri kaupið þá? Hver væru þá kjör og aðbúð verkakvenna? En þó það kunni að þykja illa við- eigandi á liátíðisdegi fjelagsins, Til Verkakvennafjelagsins Framsókn Þegar alla ísa leysti ui'ðu smáir lækir fljót. Lyftist merki hollrar lireysti liiminsól og vori mót. Þetta er ykkar þroskasaga, þetta er velferð æskunnar. Samtök megna að móta og laga menning næstu kynslóðar. Vonin á á sjer vængi nóga verður hjart um hennar rann. Þegar gull og græna skóga glitra sjáið framundan. Heill og giftu hundraðfalda hlutuð þið i feðra arf. Blessi drottinn allra alda ykkar samtök, dáð og starf. Vakið, starfið, vorið kallar, verður lilýtt um sálir manns. Verður hjart um borgir allar, hjart um framsókn nútímans. Látið alt hið fúna falla, feigð og jnoldu hníga í skaut. Látið andans orku kalla ykkur fram á sigurbraut. Sigurður Jónsson. þegar allir eiga að vera — og ætla sjer að vera — glaðir og í góðu skapi, þá vildi jeg minna á að fögn- uðurinn yfir því sem áunnist liefur má ekki draga úr áhuganum til að berjast fyrir því sem enn er ófeng- ið. Og það er margt. Þetta er ekki áfellisdójnur yfir neinum eða neinu, þó svo sje, því það mun mála sann- ast, að meðan grundvöllur núver- andi þjóðskipulags helst óhreyttur, með öllu sínu ranglæti, grimd og lieimsku, þá megna verklýðssamtök- in, hversu öflug sem þau eru, ekki að skapa fullnægjandi úrlausn. Við skulujn taka til dæmis eitt af þvi sem allra harðast leikur verka- lýðinn, konur og karla: atvinnuleys- ið og öryggisleysið. Meðan valdið yfir framleiðslutækjunum er í höndum atvinnurekenda, sem liafa sinn eigin hag að takmarki, þá fylg- ir atvinnuleysið verkalýðnum eins og slcuggi. Meðan ágóði framleiðsl- unnar gengur að miklu leyti til ó- hófsþarfa einstaklinga, en ekki til fullnægingar á sameiginlegum þörfum þeirra senj vinna, þá þarf ekki mikið út af að bera til þess að skorlurinn og neyðin berji að dyr- um alþýðunnar. Meðan alþýðan við sjó og i sveitjim hefur ekki vit eða vilja til að taka yfirráð framleiðsl- unnar í sínar eigin hendur, þá lilýt- ur þetta svo að vera. En það rajinalega er að um þetta getur alþýðan — konur og karlar — fyrst og fremst kent sjáfri sér, liún er fjöldinn, hún hefur því valdið, máttinn — ef hún aðeins notaði liann rjettilega. Við getum líka tekið annað dænii, seiij snertir mikið starf verka- kvennafjelagsins Framsókn. Það á sjúkrasjóð til styrktar veikum og fátækum fjelagskonum. Árlega leggja fjelagskonur á sig mikla vinnu, erfiði og fyrirliöfn til að afla sjóðnum tekna. Úr honum hafa verið veittar allmiklar fjárupphæð- ir, eftir því sem við er hægt að bú- ast. Og það liefur orðið fjölmörgum konum bæði mikil hjálp á erfið- leika stundunj og auk þess er oft og einatt ekki minna virði sá mikli styrkur sem í því er fólginn að finna samúð og vinsemd annara og að menn standi ekki einir og yfirgefnir af öllutn með liyrðar sinar. En þrátt fyrir alla þá vinnu sem fjelagskon- ur liafa lagt á sig og þrátt fyrir all- an þeirra fórnfúsa áliuga, þá er þó starf sjúkrasjóðsins ekki nema lítið spor í áttina, samanborið við öll bágindin og neyðina, því Grótta- kvörn þjóðskipulagsins, sú sem mal- ar yfirráðaréttindi auð og allsnægt- ir, skapar hinum hlutanum hágindi, sjúkdóma, slys og dauða. Og móti því megnar öll góðvild og lijarta- gæska einstaklingsins, svo sorglega lítið, ef ekki fylgjast að fleiri úr- ræði. Svona jnætti lengi lialda áfram að telja, en tímihn og rúmið er tak- markað. Þessi orð eru ekki skrifuð til að vanþakka eða telja kjark úr fjelagskonum, þvert á móti eru þau skrifuð með ósk um að geta hvatt þær til þeirrar baráttu sem valdið geti úrslitum. Það þarf að hrjóta á hak aftur vald rangíætisins í atvinnumálum, fjármálum og stjórnmálum. Það er lifsnauðsyn vei’kalýðsins, köllun hans og skylda. Geri hann það hefst sannarleg framsókn í lífi þjóðarinnar. Minnist þess Framsóknarkonur, nú við 20 ára merkjasteininn. Til hamingju með liðin og ófar- in ár. Ljótunn. Ritstj.: Pjetur G. Guðmundsson. Ríkisprentsmiðjan Gutenberg.

x

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn
https://timarit.is/publication/661

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.