Kylfingur - 01.06.1935, Qupperneq 7
COLULQMQJ) ICLflUDC
KYLFIHöUK
1. ár
*** »*♦ *** *** ****** >** *** »*♦ ♦*«
Reykjavik, Júni 1935
1. hefii
Úr hlaði.
Engu fáum vér mennirnir hrundið af stað, og engu góðu
áorkað, nema einhver taki sér fram um að hefjast handa í
þeim tilgangi. Það gera áhugamennirnir. Til þess að koma
einhverju málefni af stað og í framkvæmd, þurfa svo annað-
hvort upphafsmennirnir eða aðrir að vinna að málefninu
áfram. Það gera dugnaðar- og atorkumennirnir.
Nú hafa áhugamenn vakið máls á því, að stofna til golf-
leikja hér í Reykjavík. Þeir hinir sömu, með aðstoð góðra
manna, hafa hrundið þeirri hugsjón í framkvæmd. En það er
ekki nóg að byrja á einhverju fyrirtæki. Byrjunin er því að-
eins réttmæt, að fyrirtækið eigi tilverurétt og tilverumögu-
leika áfram.
Hvað kylfingu eða golfleiki snertir, þá eru væntanlega allir
félagar golfklúbbsins sannfærðir um það, að hún eigi hér
fullkominn tilverurétt, eigi hingað gagnlegt erindi og verði
langlíf i landinu. Til þess að svo megi verða, þurfe\ golfleikir
að eflast, útbreiðast og þroskast frá því byrjunarstigi, sem
þeir nú eru á. Að þessu og öllum viðgangi klúbbsins þarf
að vinna. Þetta gera kylfingarnir sjálfir að nokkru leyti með
leik sínum og þjálfun, en að nokkru er það falið stjórn
klúbbsins. Hún er nú skipuð góðum mönnum, eins og allir
vita; mönnum, sem vilja vel, geta vafalaust mikið og gera
vonandi ennþá meira. Hún þykist að minsta kosti vera komin
vel af stað. Hún hefir útvegað góðan golfkennara (sem hún
missti nú að vísu úr höndum sér aftur), golfáhöld, golfvöll,
golfhús og gott veður til þess að æfa sig í. Hún biður þess
þó getið, að hún taki ekki ábyrgð á veðrinu lengur.