Kylfingur - 01.06.1935, Qupperneq 9
KYLFINGUR
3
klúbbstjórn að fresta ákvörðun um inntökubeiðni til fundar, svo
og að takmarka félagafjölda.
III.
Árgjald er:
1. Fyrir hluttæka (aktiva) seniores kr. 50.00
2. — hluttæk hjón - 60.00
3. — hluttæka Juniores - 25.00
4. — óhluttæka félaga - 1 .00
Æfifélagar utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar greiði kr.
100.00 í eitt skifti fyrir öll.
Óhluttækir æfifélagar greiði kr. 100.00 í eitt skifti fyrir öli.
Útlendingar búsettir erlendis greiði gjald samkvæmt 4. lið
tvöfalt. Önnur gjöld: Gestir greiða kr. 3 00 á dag fyrir vall-
arafnot, en kr. 10.00 á viku og kr. 20.00 fyrir mánuð. Útlendir
gestir greiði tvöfalt. Þó er stjórninni heimilt að bjóða út-
lendingum ókeypis öll réttinda afnot, ef sérstakar ástæður
mæla með.
Ákvarðanir um sérstök aukaframlög má aðeins bera fram
og samþykkja á aðalfundi, og nægir þá einfaldur meirihluti.
IV.
Árgjaldið sé greitt fyrir lok fyrsta ársfjórðungs ár hvert.
Þeir sem ganga í klúbbinn eftir 1. ágúst greiða aðeins V2 ár-
gjald fyrir það ár, auk inntökugjaldsins. Eigi nokkur félagi
ógreidd gjöld sín 1. júlí, missir hann öll réttindi, uns gjöldin
eru að fullu greidd.
V.
Úrsögn er bundin við áramót, enda komi hún skrifleg til
ritara fyrir Iok desembermánaðar.
VI.
Við leikinn er fyrst um sinn fylgt þeim reglum, er stjórn
klúbbsins ákveður. Stjórnin ákveður þær staðbundnu reglur,
er hún telur þurfa. Sérhver félagi er skyldur að fara eftir
þeim reglum, sem stjórnin setur um leikinn og umferð og
umgengni á golfvellinum og í golfhúsinu. Stjórnin getur lát-