Kylfingur - 01.06.1935, Síða 10
4
KYLFINGUR
ið mikil brot gegn þessum reglum varða réttindamissi eftir
atvikum og brottrekstri, ef um ítrekaðar miklar sakir er að
ræða.
VII.
Stjórn klúbbsins skipa 7 menn, formaður, ritari og gjald-
keri og 4 meðstjórnendur kosnir skriflega með óhlutbundnum
kosningum á aðalf indi til eins árs í senn. Þá má endurkjósa,
en ekki eru þeir skyldir að gefa kost á því. Gangi einhver
þeirra úr stjórn, eða flytji burtu, má stjórnin taka sér félaga
í skarðið, til næsta aðalfundar.
VIII.
Stjórnin skiftir með sér ýmsum störfum, og ákveður sjálf
sína starfstilhögun á hverjum tíma. Hún getur tekið launaða
aðstoð og fær bein útgjöld endurgreidd úr félagssjóði, en
vinnur sjálf ókeypis. Hún kemur fram fyrir klúbbsins hönd, og
í fullu umboði hans, í öllum málum, sem hann varða.
Þó þarf samþykki aðalfundar til stórra ákvarðana, svo sem
stórra eignabreytinga, brautarnýbygginga og annars.sem hefir
mikil fjárútlát í för með sér. Hún getur til iefnt heiðursfélaga,
ef alveg sérstakar ástæður eru fyrir hendi, enda leiti hún
fundarsamþykktar á því.
IX.
Aðalfundur er æðsta úrskurðarvald í öllum málum klúbbs-
ins. Hann skal halda i Reykjavík í marsmánuði ár hvert. Á
öðrum tímum ársins getur stjórnin boðað til auka-aðnlfundar,
ef henni þykir henta, eða 10 hluttækir félagar senda henni
skriflega beiðni um það, ásamt röksemdum fyrir þörf hans.
Ber stjórninni að halda slikan fund innan 3 vikna frá móttöku
slíkrar beiðni. Aðalfund og auka-aðalfund skal boða skrif-
lega með viku fyrirvara. Í fundarboðinu skal tilgreina hvaða
málefni liggi fyrir. Félagar, sem viþa gera tillögur til laga-
breytingar eða starfstilhögunar, skulu hafa sent stjórninni þær
fyrir lok janúarmánaðar.