Kylfingur - 01.06.1935, Side 11
KYLFINGUR
5
X.
Þessi eru störf reglulegs aðalfundar:
1. Skýrsla stjórnarinnar um störf og framkvæmdir síð-
astliðið ár.
2. Endurskoðaðir reikningar, lagðir fram til samþykkis.
3. Umræður og atkvæðagreiðsla um tillögur félaga
samkvæmt IX. grein.
4. Stjórnarkosning.
5. Tveir félagar kosnir í Handicap-nefnd ásamt ritara
klúbbsins.
6. Kosnir tveir endurskoðendur
XI.
Aðalfundur og aðrir fundir klúbbsins eru lögmætir, séu
þeir löglega boðaðir og ályktunarfærir ef l/3 hluttækra félaga
eru á fundi. Þó þarf helmingur hluttækra félaga að vera við
staddur til lagabreytinga. Verði aðalfundur ekki ályktunarfær,
skal boða til fundar á ný, innan 3 vikna og er hann álykt-
unarfær hversu fáir sem koma, sé hann löglega boðaður sam-
kvæmt IX. grein.
Afl atkvæða ræður úrslitum á fundum. Þó hafa aðeins
Seniores atkvæðisrétt, og að því er við kemur golfvelli og
leikreglum hafa aðeins þeir hluttæku félagar atkvæðisrétt.
Aðalfundur skal kjósa sér sérstakan fundarstjóra og bók-
ara eftir tillögum stjórnarinnar. Fundargerð skal i fundar-
lok bera upp til samþykktar og undirskrifa af viðstöddum
stjórnendum, ásamt fundarstjóra og bókara og skoðast hún
síðan sem fullt sönnunargagn um það, sem ákveðið hefir
verið.
Hætti klúbburinn störfum, ákveður sérstakur aðalfundur
um það. Til lögmæti þeirra ákvarðana þarf helmingur fé-
laga að vera á fundi og 2/3 þeirra að greiða atkvæði með
því. Náist ekki svo margir skal fara að svo sem segir í 2.
málsgrein þessarar greinar um aðalfund.
XII.
Reikningsár klúbbsins er almanaksárið. Gjaldkeri skal i
siðasta lagi mánuði fyrir aðalfund senda endurskoðendum