Kylfingur - 01.06.1935, Síða 19

Kylfingur - 01.06.1935, Síða 19
KYLFINGUR 13 Golfhúsið. Húsreglur. Stjórn G. í. hefir ráðið ungan aðstoðarbryta, herra Val Norðdahl til þess að annast vörslu húss og vallar og sjá fé- jögum fyrir veitingu í klúbbhúsinu. Um húsið hefir hún sett ■þessar reglur, sem nefndum verði ber að framfylgja: 1, Húsið er opnað kl. 8 að morgni og lokað kl. 11 að (kvöldi alla virka daga, nema laugardaga, þá er það opið til kl. 12. Á sunnudögum er það opnað kl. 9, en lokað sem virka daga. Stjórn klúbbsins getur framlengt lokunartíma ef isérstakur fagnaður er þar fyrirfram boðaður. .2. 'Félagsmönnum ber að forðast að taka með sér gesti í klúbbhúsið aðra en kylfusveina (caddies), þá er klúbbstjórn hefir samið við, enda ber vörslumanni stranglega að gæta þess að aðrir komi ekki innfyrir hlið, en félagsmenn. Undan- tekningu frá þessari grein hefir stjórn klúbbsins, samkvæmt lögum hans, leyfi til að gera. 3. Vörzlumaður sér um að halda húsi og húsmunum hreinum og annast röð og reglu í og umhverfis húsið. Hann selur fé- lögum og veitingar skv. verðskrá, er fest er upp i húsinu, að undanskildum dr.p. Er ætlast til, að hver félagi geti fengið hressingu að sinu skapi og með vægara verði en annarsstað- ar, hvenær sem er á þeim tima, er húsið er opið, en ekki á undan opnun né eftir lokunartíma. 4. Vörzlumanni ber i einu og öllu að aðstoða stjórn G. í. að halda húsinu svo vistlegu, að félagar kunni við sig og finni sig eiga heima þar, enda er til þess ætlast, að félagar venji komur sínar þangað og segi stjórn G. í. frá, ef þeir óska einhverra breytinga eða framkvæmanlegra viðbóta. ATHS. í fljótu bragði má vera að fjelögum þyki 2. gr. húsreglanna óþarflega ströng, en við nánari athugun og sérstaklega i reyndinni munu félagsmenn sætta sig við hana. Hvorki hús né völlur er aflögu fær um pláss, ef margir mæta. Það er leiðinlegt að koma þreyttur og þyrstur úr golf- leik og fá ekki viðunandi sæti fyrir forvitnum gestum, sem .annars hafa .engan áhuga fyrir golfiþróttinni. Slíkum gestum

x

Kylfingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.