Kylfingur - 01.06.1935, Síða 20
14
KYLFINGUR
eru golfvellir lokaðir hvar sem er í heiminum. Allt annað
mál þótt séð sé i gegnum fingur með einn og einn nákominn
vin eða ættingja einhvers félaga, sem vill kynnast leiknum
af eigin sjón áður en hann ákveður að sækja um inntöku.
Þetta ákvæði snertir ekki þá útlendu golfiðkendur er vilja
iðka leikinn. Samt geta þeir ekki komið nema „introduced by‘l
einhuerjum félagsmanni. Sá hinn sami ber ábyrgð á að við-
komandi skrifi nafn sitt i gestabók og gjaldi sitt „greenfee“
sem er minnst kr. 5 fyrir daginn.
Frá stjórn og ritstjórn.
Þeir félagar, sem fengu lánaðar kylfur klúbbsins hjá golf-
kennaranum i vetur, eru vinsamlega beðnir að skila þeim til
húsvarðar er þeir hafa fengið sér aðrar, og þurfa ekki á þeim
að halda lengur. Æskilegt væri að þeir félagar, sem enn
hafa kylfur að láni og óska að halda þeim lengur, létu vörzlu-
mann vita um hve margar þeir hafa og hvaða gerðir.
Kólfar (boltar) og kylfur (clubs) o. fl. tilheyrandi kylfingu
fæst hjá húsverði. Kylfingur fæst þar einnig og geta menn
gerst áskrifendur að honum þar. Myndin frá klubbvígslunni
fæst þar einnig o. fl.
í næsta blaði »Kylfings« koma leikreglur og reglur um
kylfusveina (caddies).
Stjórn G. t. hefur látið gera lagleg golfflögg á stöng, og
eru þau til sölu fyrir klúbbmeðlimi. Flöggin eru hvít „Spids“
flögg, með rauðum stöfum G.í. dregnum saman í flaggið. Stöngin
er borðstöng úr furu, stungið í þversneið af islenzku birkitré,
grænmálaðri að ofan. Flöggin sjálf eru eins að gerð og þau,
sem notuð eru á leikvellinum, og likist þvi stöngin með flagg-
inu vallarflöt með flaggstöng í holu. Flöggin eru tilvalin
tækifærisgjöf fyrir meðlimi Klúbbsins. Þau fást hjá húsverði
og kosta 12 kr.