Kylfingur - 01.06.1935, Síða 21

Kylfingur - 01.06.1935, Síða 21
KYLFINGUR 15 Terminologia. Svo sem eðlilegt er láta mörg erlendu golfleikaheitin illa í eyrum islenzkra golfiðkenda og reynast þeim óþjál og ótöm a tungu. íslenzk málmeðvitund lætur illa við að taka þau upp óbreytt og ómelt. Þetta er þeim mun skiljanlegra þegar þess er gætt, að sjálft orðið Golf er skozk afbökun á ísl. orðinu kólfur og upprunalega tekið upp í skozku úr fornís- lenzku ásamt ef til vill fleiru, er snert hefir kylfuknattleik fornmanna hér á landi. Af kólfur er dregið kylfa (f.) og kylfi (n.), sem þýðir það sama. Orðið kylfingur (m.) flt. kylfingar kemur fyrir í Egilssögu um austrænan þjóðflokk, er kenndur var við kylfur. Golf er þvi skozk afbökun af kólf eða kylfu, og kylfing (f.) rétt myndað og gott til að tákna golfleik (sbr golfing). Sá sem iðkar kylfing nefnist kylfingur (golfer) (sbr. ofangreindu). Sé lengra haldið út í þá sálma, má nefna, að beint Iiggur við að kalla the green flöt (f.), flt. flatir, og the fairway braut, flt. brautir, en the tee bara tje (T.), uns betra gefst. Golfbrautirnar (þ.e. the course), kallast golfuöllur. Rougli má kalla torleiðí og bunkers, traps etc. torfœru, huarf eða ófæru o. fl. eftir staðháttum. Þá mun vart um deilt að kalla the hole holu og the club kylfu og the ball kólf. — Stjórn G. í. bendir aðeins á þessa möguleika, en vill var- ast að lögbjóða nokkuð annað en það, sem smátt og smátt, sökum yfirburða sinna, festir rætur í málvitund og tungutaki félagsmanna. Hún mun einnig birta framvegis góðar tillög- ur undir ofanskráðri fyrirsögn, ef þær berast henni. Kylflngur: Gefinn út af stjórn Golfklúbbs íslands. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Helgi H. Eiríksson. Isafoldarprentsmiðja h.f.

x

Kylfingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.