Fréttablaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 20
MARKAÐURINN 2. FEBRÚAR 2011 MIÐVIKUDAGUR4
F R É T T I R
Tilnefnt er til verðlauna í tíu
flokkum við afhendingu Íslensku
vefverðlaunanna 2010 í Tjarnar-
bíói næstkomandi föstudag.
Fram kemur í tilkynningu að
íslensku vefverðlaunin séu upp-
skeruhátíð vefiðnaðarins, „hald-
in með það að markmiði að efla
hann, verðlauna bestu vefina og
hvetja þá sem starfa á þessum
vettvangi til dáða“.
Tilnefnt er fyrir besta sölu- og
kynningarvef fyrirtækis, bæði
með fleiri og færri en 50 starfs-
menn, besta þjónustu- og upplýs-
ingavefinn, besta afþreyingar-
og fréttavefinn, besta blogg/efn-
istök/myndefni, besta vefinn fyrir
hand- eða smátæki, bestu mark-
aðsherferðina, bestu hönnunina,
frumlegasta vefinn, athyglisverð-
asta vefinn og svo besta vef Ís-
lands 2010.
Verðlaunin eru nú afhent í tí-
unda sinn, en dagskráin hefst
klukkan sex með fyrirlestri Sim-
ons Collison (www.colly.com), en
hann er af mörgum sagður talinn
einn færasti vefhönnuður heims.
- óká
Vefverðlaunatilnefn-
ingar í fjölda flokka
Afhending í Tjarnarbíói á föstudaginn.
Einkahlutafélagið F 14 Holding, tap-
aði um 1,2 milljörðum króna árið 2009
og bætist það við 282 milljóna króna
tap frá fyrra ári. Skuldirnar, 2,6 millj-
arðar, eru að nær öllu leyti tengdar
verðbréfaviðskiptum. Eigið fé var nei-
kvætt um tæpa 2,5 milljarða króna í
lok ársins, samkvæmt nýbirtum árs-
reikningi.
F 14 Holding hét áður Maggi ehf.
og var í eigu athafnamannsins Magn-
úsar Ármann sem var stórtækur í ís-
lensku viðskiptalífi fram að hruni.
Maggi átti helmingshlut í Materia In-
vest, sem Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi fyrir skemmstu til að greiða
Arion banka 6,4 milljarða króna lán
til baka með dráttarvöxtum. Eig-
endur félagsins, Magnús Ármann
og Kevin Stanford, voru sömuleið-
is dæmdir til að greiða bankanum
240 milljónir króna.
Magnús, sem sagður er búsettur
í Barcelona á Spáni, átti sömuleið-
is félagið Imon sem fékk níu millj-
arða króna lán hjá Landsbankanum
3. október 2008 til kaupa á hluta-
bréfum í bankanum fyrir sömu upp-
hæð. Mál félagsins mun nátengt
rannsókn embættis sérstaks sak-
sóknara á allsherjar markaðsmis-
notkun í Landsbankanum. - jab
Magnús skilur eftir sig skuldaslóð
ATHAFNAMAÐUR Athafnamaðurinn
Magnús Ármann var eitt sinn umsvifa-
mikill í íslensku viðskiptalífi. Nú virðist
hann eiga skuldir víða. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Besti söluvefur stórfyrirtækis:
www.icelandair.is
www.legendsofvalhalla.com
www.nova.is
www.ring.is
www.stod2.is
Besti þjónustu- og upplýsingavefurinn:
datamarket.com
www.ja.is
www.listasafnreykjavikur.is
www.meniga.is
www.skogur.is
Besti afþreyingar- og fréttavefurinn
bestulogin.siminn.is
www.gitargrip.is
www.pressan.is
www.sport.is
www.stjornuskodun.is
Besta markaðsherferðin
www.ring.is
www.hlaupastyrkur.is
www.icelandwantstobeyourfriend.com
www.inspiredbyiceland.is
www.karlarogkrabbamein.is
N O K K R I R T I L N E F N D I R
Atvinnuleysi í Þýskalandi hefur
ekki verið minna frá árinu 1992
og jaðrar nú við að skortur sé á
vinnuafli.
3,1 milljón manna er án vinnu,
sem jafngildir 7,4 prósentum af
mannafla, og samkvæmt tölum
vinnumálastofnunar þar í landi er
það hlutfall það lægsta sem hefur
sést frá nóvember 1992. Eftir fjár-
málakreppuna haustið 2008 hefur
leiðin legið skarpt upp á við hjá
Þýskalandi og hafa síðustu miss-
eri einkennst af hraðasta hag-
vexti sem um getur frá samein-
ingu Austur- og Vestur-Þýska-
lands. - þj
Allt á uppleið í Þýskalandi:
Atvinnuleysi í 19 ára lágmarki
FRÁ BERLÍN Efnahagslífið í Þýskalandi er
í rífandi uppsveiflu.
Alþjóðaviðskiptastofnunin (World
Trade Organization, WTO) hefur
komist að þeirri niðurstöðu að
bandaríski flugvélaframleiðand-
inn Boeing hafi áratugum saman
notið mikilla og ólöglegra opin-
berra styrkja. Í skýrslu stofnun-
arinnar sem kynnt var Evrópu-
sambandinu (ESB) í byrjun vik-
unnar er Boeing sagt brotlegt við
alþjóðasamninga. Lokaskýrslu
WTO um málið er sagt að vænta
innan nokkurra vikna.
Boeing og evrópski flugvéla-
framleiðandinn Airbus hafa árum
saman eldað grátt silfur vegna
meintrar ríkisaðstoðar. Í tilkynn-
ingu sem Airbus sendi frá sér er
aðstoðin til Boeing sögð langtum
skaðlegri áhrif á samkeppni í
flugiðnaði en lán Evrópuríkja til
Airbus, sem Boeing hefur gagn-
rýnt.
Því er hins vegar haldið fram
af hálfu ESB að Boeing hafi notið
ólöglegra styrkja upp á 24 millj-
arða dala (um 2.780 milljarða
króna) í formi beinna styrkja al-
ríkisins og einstakra ríkja Banda-
ríkjanna, rannsóknarstyrkja og
afnota af rannsóknarvinnu og
tækni bandarísku geimferðastofn-
unarinnar NASA og varnarmála-
ráðuneytis Bandaríkjanna. End-
anlegt umfang skýrist þó ekki
fyrr en með lokaskýrslu WTO,
að því er fram kemur í umfjöllun
fréttastofu AP.
Bæði ESB og Bandaríkin hafa
leitað til WTO vegna meintrar
ólöglegrar ríkisaðstoðar til flugfé-
laganna beggja. Málin hafa verið
í rannsókn síðan 2004.
- óká
Ríkisstyrkir til Boeing ólöglegir
Milljarða dollara opinberir styrkir til Boeing skekktu samkeppni segir WTO.
DREAMLINER Í KEFLAVÍK Í tilkynningu
Airbus er því haldið fram Boeing hefði ekki
getað framleitt 787 Dreamliner þotu sína
án ríkisstyrkja. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓKÁ
Þorgils Jónsson
skrifar:
Pósthúsið hf., sem hefur boðið upp á margvís-
lega dreifingarþjónustu frá árinu 2004, fékk fyrir
skemmstu gæðavottun samkvæmt ISO 9001:2008
staðlinum og uppfyllir því þær kröfur sem því
fylgja. Framkvæmdastjóri segir vottunina viður-
kenningu á góðu starfi.
Pósthúsið sér meðal annars um dreifingu Frétta-
blaðsins auk fjölpósts og nafnadreifingar blaða og
tímarita.
„Í raun og veru ákváðum við að fara út í þessa
vottun eftir að hafa farið út í uppstokkun á öllum
vinnuferlum hjá okkur og þjónustugæðum,“ segir
Hannes A. Hannesson, framkvæmdastjóri Póst-
hússins, í samtali við Markaðinn.
„Eftir að hafa gengið í gegnum breytingar á
starfseminni þurftum við að festa okkar vinnu-
ferla til framtíðar. Þar sem við erum þjónustufyr-
irtæki þarf að staðla okkar þjónustu og hún þarf að
vera í samræmi við þau loforð sem við gefum við-
skiptavinum okkar. Svo er líka tekið með gagnrýni
á þeim frávikum sem verða til þess að koma í veg
fyrir að slíkt hendi aftur.“
Hannes segir innleiðingarferlið, sem var unnið í
samstarfi við ráðgjafarfyrirtækið 7.is, hafa gengið
framar vonum og það sé ekki síst að þakka fram-
lagi starfsfólks. Vottunin sé viðurkenning á góðu
starfi og eigi þar að auki eftir að styrkja fyrirtæk-
ið í frekari sókn.
„Við fórum út í þetta ferli til að styrkja stöðu
okkur til framtíðar en fyrirtæki krefjast í auknum
mæli þess að þjónustufyrirtæki sem þau skipta við
hafi slíka vottun. Þetta leggur því grunn að frekari
sókn Pósthússins, hvort sem er á sviði blaða eða
tímaritadreifingar, póstþjónustu eða vörudreifingu
sem er okkar kjarnastarfsemi. Þetta er okkur mik-
ill stuðningur til frekari sóknar.“
Gæðavottun er góður
stuðningur til sóknar
Pósthúsið hf. fékk nýlega gæðavottun sem framkvæmda-
stjóri segir viðurkenningu á góðu starfi innan fyrirtækisins.
GÆÐAVOTTUN Hannes A. Hannesson, framkvæmdastjóri Pósthússins, segir gæðavottun sem fyrirtækið fékk nýlega, leggja grunn að
frekari sókn fyrirtækisins á dreifingarmarkaðinum hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Olíufélagið BP hefur ekki enn náð
fyrri stöðu eftir mengunarslysið í
Mexíkóflóa í fyrra þrátt fyrir að
hafa skilað hagnaði á fjórða árs-
fjórðungi 2010. Hagnaður BP frá
október fram að áramótum nam
alls um 4,6 milljörðum dala, en
yfir árið var tapið 4,9 milljarð-
ar.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu
1992 sem fyrirtækið er rekið með
tapi, en engu að síður verður hlut-
höfum greiddur arður fyrir síð-
asta ársfjórðung, sem nemur sjö
sentum á bréf. Það er í takt við
spár sérfræðinga og er um helm-
ingur þess sem greitt var fyrir at-
vikið í Mexíkóflóa. - þj
Greiða arð þrátt fyrir tap
Enn vandræði hjá breska olíurisanum BP.
OLÍUSLYS Olíurisinn BP hefur enn ekki náð sér á strik eftir mengunarslysið í Mexíkóflóa.
NORDICPHOTOS/AFP
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU