Fréttablaðið - 02.02.2011, Blaðsíða 42
2. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Haukur Tómasson sigraði nýverið í tónverkasamkeppni
sem Tónlistarhúsið Harpa efndi til í samstarfi við Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og verður verkið frumflutt á opnun-
arhátíð Hörpu 13. maí næstkomandi. Í umsögn dómnefnd-
ar segir: „Verkið hefur sterkt og ákveðið svipmót, í því
ríkir glaðværð og eftirvænting sem hæfir tilefninu vel.
Stefjavinnsla höfundar er skemmtilega útfærð, og litbrigð-
in sem fást með notkun hljóðfæranna eru fjölbreytt og
glæsileg, svo að Sinfóníuhljómsveit Íslands er gefið færi á
að njóta sín til fulls. Sérstaka hrifningu vakti tilþrifamik-
ill og kröftugur hápunktur verksins, sem ber yfirskrift-
ina Estatico, sem mætti útleggja sem: „í sæluvímu“, eða
„með ofsakæti“.“
Haukur vonar að verkið standi undir væntingum og
hlakkar til að heyra það flutt í húsi sem tekur undir. „En
hvað skyldi það hafa verið lengi í smíðum? Keppnin var
auglýst í júlí og var það konan mín sem rak augun í auglýs-
inguna þar sem við vorum stödd í fríi á Núpi í Dýrafirði.
Ég byrjaði strax að hugsa en var alveg fram yfir áramót
að klára verkið með öðrum verkefnum,“ segir Haukar.
Umsóknarfresturinn rann út 7. janúar og bárust sautján
verk í keppnina. Tekið var fram í auglýsingunni að verk-
ið ætti að hæfa tilefninu og þykir Hauki hafa tekist vel
til. „Verkið heitir Harpa eins og gamli vormánuðurinn og
verður opnunin í sama mánuði. Vorið er alltaf skemmti-
legur tími og ég reyndi að ná því í gegn. Þá hugsaði ég um
húsið og allt þetta gler og þá speglun sem ég sé fyrir mér
að verði í glerveggnum. Það eru stef í tónlistinni sem vísa
í það og ákveðin speglun í tónunum.“
Harpa er eitt af þremur verkum sem verða frumflutt
eftir Hauk á næstu mánuðum. „Ég er að ganga frá verki
sem ég gerði í samvinnu við Eggert Pétursson listmálara
og verður flutt í Listasafni Íslands núna í febrúar en auk
þess hef ég gert verk fyrir Mótettukór Hallgrímskirkju,
Scola Cantorum og Kammersveit Reykjavíkur sem verð-
ur frumflutt á Listahátíð í vor.“ vera@frettabladid.is
HAUKUR TÓMASSON: SIGRAÐI Í
TÓNVERKASAMKEPPNI HÖRPUNNAR
Glaðværð sem
hæfir tilefninu
VALIÐ ÚR SAUTJÁN VERKUM Verkið verður flutt á opnunarhátíð
Hörpunnar í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma
Svanhildur Pálsdóttir
síðast til heimilis að Skjóli í Reykjavík,
andaðist föstudaginn 28. janúar 2011. Útförin fer fram
frá Fossvogskapellu mánudaginn 7. febrúar og hefst
klukkan 15.00.
Guðbjörn Lárus Elíson Amanda Inga Einarsdóttir
Páll Rúnar Elíson Yvonne Elíson
Elín Elídóttir Daníel Halldórsson
Sólrún Elídóttir Einar Guðlaugsson
Svanur Elíson Agnes Gunnarsdóttir
Einar Hannesson
Guðrún Erna Ingimundardóttir Erik Gulsrud
Sigurður Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir færum við þeim sem
heiðruðu minningu mömmu okkar,
tengdamömmu, ömmu og langömmu
Páldísar Eyjólfs
Við þökkum auðsýnda samúð og vináttu og færum
starfsfólki Droplaugarstaða kærar þakkir fyrir
kærleiksríka umönnun.
Halldóra Konráðsdóttir Þorvaldur Sigurbjörnsson
Elísabet Konráðsdóttir Sigurður Halldórsson
Elín Konráðsdóttir Guðni Bergsson
barnabörn og langömmubörn
Faðir okkar, afi, langafi, vinur og
frændi,
Vilhelm Arnar
Kristjánsson
Smiðjustíg 2, Eskifirði,
sem lést að heimili sínu 29. janúar, verður jarðsunginn
frá Eskifjarðarkirkju laugardaginn 5. febrúar kl. 14.00.
Kristján Pálmar Arnarsson
Kristrún Helga Arnarsdóttir
Erna Kristín Kristjánsdóttir Sveinn Heiðar Sveinsson
Matthías Logi og Snædís Alda Sveinsbörn
Arnar Þór Kristjánsson
Unnar Kristjánsson
Eggert Ó. Einarsson Laufey Sigríður
Kristjánsdóttir
Jóhanna Pétursdóttir
og aðrir aðstandendur
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og systir,
Sóley Tómasdóttir
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 25. janúar. Útför
hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
4. febrúar kl. 13.00.
Hallgrímur G. Magnússon Anna G. Ástþórsdóttir
Hrafn Magnússon
barnabörn og langömmubörn
Fjóla Tómasdóttir
Elsku eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og tengdasonur
Matthías Bjarki
Guðmundsson
sem lést miðvikudaginn 26. janúar, verður jarðsunginn
frá Hjallakirkju föstudaginn 4. febrúar kl. 11.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands, Ljósið eða
önnur líknarfélög.
Björg Ragna Erlingsdóttir
Lúðvík Már Matthíasson
Máni Matthíasson
Markús Ingi Matthíasson
Guðmundur G. Magnússon Anna Björk Matthíasdóttir
Magnús Víðir Guðmundsson Kristín K. Ólafsdóttir
Ágúst Hlynur Guðmundsson Kristín Valdemarsdóttir
Erlingur Lúðvíksson Jakobína Ingadóttir
Ástkær eiginmaður minn,
Jónas Magnússon
húsasmíðameistari,
áður til heimilis að Rauðalæk 32,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. janúar. Útför hans
fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 4. febrúar
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningarkort Blindrafélagsins eða Hrafnistu í
Reykjavík.
Sigríður Þorkelsdóttir.
Móðursystir okkar og mágkona,
Þorbjörg Andrésdóttir
Bólstaðarhlíð 44,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 31. janúar síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Andrés Svavarsson
Kristín Svava Svavarsdóttir
Guðni Birgir Svavarsson
Rannveig Beiter
Svavar Guðnason
og fjölskyldur
MOSAIK
Ástkær móðir mín, tengdamóðir
og amma
Klara Þorleifsdóttir
Teigaseli 9, Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 30. janúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
11. febrúar kl. 13.00.
Þorleifur Jónsson Halldóra Andrésdóttir
Andrés Þorleifsson
Hjalti Þorleifsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
okkar hjartkæru
Vigdísar Theodóru
Bergsdóttur,
Dósýjar.
Megi birta og ylur umlykja hjörtu ykkar um ókomna
tíð.
Ellert og stórfjölskyldan Bjarnastöðum
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur vináttu, hlýhug og samúð
við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Skarphéðins Árnasonar.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilisins
Höfða fyrir nærgætni og hlýju. Landssamtökum
smábátaeigenda færum við einnig sérstakar þakkir
fyrir einstaka vináttu og virðingu sem þau sýndu
honum með þátttöku sinni í athöfninni.
Sigurbjörn Skarphéðinsson María Karlsdóttir
Sigrún Birna Skarphéðinsdóttir Pétur Örn Jónsson
Aðalheiður Skarphéðinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn