Fréttablaðið - 02.02.2011, Side 46
22 2. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR
BAKÞANKAR
Sifjar Sig-
mars dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. tilfinningaleysi, 6. hola, 8. sótt-
hreinsunarefni, 9. sefa, 11. guð, 12.
flatfótur, 14. kvk nafn, 16. skóli, 17.
netja, 18. fugl, 20. tveir eins, 21. tangi.
LÓÐRÉTT
1. skítur, 3. upphrópun, 4. forskot, 5.
röst, 7. land í Evrópu, 10. flýtir, 13.
angan, 15. illgresi, 16. skammst., 19.
tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. dofi, 6. op, 8. joð, 9. róa,
11. ra, 12. ilsig, 14. lilja, 16. ma, 17.
mör, 18. önd, 20. ff, 21. oddi.
LÓÐRÉTT: 1. sori, 3. oj, 4. forgjöf, 5.
iða, 7. pólland, 10. asi, 13. ilm, 15.
arfi, 16. möo, 19. dd.
Ooooo…
eru þau ekki
sæt saman?
Blessaður, ég
verð að fá að
kynna mig.
Þorbjörn!
Ókei.
Ánægjulegt.
Jæja, þá fer ég
aftur í sokka-
skúffuna. Það er
stríðsástand þar!
Kamilla!
Þú áttar þig á
því að hann er
með peysu yfir
axlirnar?
Enginn er
fullkom-
inn Jói.
Síst af
öllu þú.
Halló!
PEYSA UM
AXLIRNAR?
Er það verra
en Kiss-nær-
buxur úr leðri
með göddum
og rennilás?
JÁÁÁ!!!
Ég á von á
símtali þannig
að þú mátt
taka fyrir mig
skilaboð Palli.
Af hverju
áfram-
sendirðu
ekki
símtölin
í far-
símann
þinn?
Ég ætla
ekki að taka
gemsann
með..
En, getur
fólk ekki
lesið inn
á talhólf,
sent sms
eða tölvu-
póst?
Taktu bara
skilaboð.
Það hlýtur bara
að vera einhver
rafrænn valkost-
ur við að ég þurfi
að standa upp úr
sófanum!
Ein leið til að sjá hvort þú hafir
fengið þér of mikið neðan í því …
... þau eru enn svolítið spennt fyrir
morgundeginum.
Eru Solla
og Hannes
sofnuð?
Ekki
alveg.
BANK!
BANK!
Ég sat í félagsskap poka af kartöfluflög-um fyrir framan sjónvarpið og horfði á
beina útsendingu frá Alþingi. Þingheimur
þrefaði um ákvörðun Hæstaréttar um ólög-
mæti kosninga til stjórnlagaþings. Eins og
úrillir ríkisstarfsmenn sem sendir höfðu
verið í „paintball“ til hópeflingar viku
stjórnarliðar sér undan ábyrgðinni sem
beint var að þeim. Í stjórnarandstöðunni
féll hver maður um annan í kappi um að
gera sér mat úr skakkaföllunum.
POKINN með kartöfluflögunum sem veitti
mér huggun yfir umræðum um ósigur
stjórnlagaþings táknaði minn persónulega
ósigur. Þegar jólaofátið í desember stóð
sem hæst og mér leið eins og gæs með mat-
arslöngu í kokinu sem fóðruð er nauðug svo
hún megi enda sem almennilegt „foie gras“,
gaf ég sjálfri mér loforð. Á nýju ári færi ég
í megrun. Uppskriftin að megrunarkúrn-
um var bókin Skyndilausn: Hvernig skal
öðlast fallegan líkama á 14 dögum.
ÞAR sem ég sat með kartöfluflög-
urnar mínar, kolfallin á kúrnum, og
horfði á ráðamenn landsins karpa
rann upp fyrir mér ljós: Stjórn-
lagaþing er eins og megrunarkúr.
EIN af þeim aðgerðum sem grip-
ið var til þegar veikur grunnur
góðærisins lét undan og íslenskt
samfélag hrundi var að leggja
drög að endurskoðun stjórnarskrárinn-
ar. Markmiðið var nýtt og betra Ísland. En
ekki frekar en stjórnarskráin var valdur
hrunsins verður hún okkur bjargvættur.
Við munum ekki svífa á vængjum nýrrar
stjórnarskrár upp úr kreppunni. Ný stjórn-
arskrá mun ekki skapa fleiri langtímastörf
eða redda Icesave. Vonin um að allt verði
betra með nýrri stjórnarskrá er hylling.
Alveg eins og hugmynd mín um að á fjór-
tán dögum geti ég öðlast fullkominn lík-
ama. Stjórnlagaþing, eins og megrunarkúr,
er tilraun til að stytta sér leið að markmiði;
betra útliti; betra samfélagi.
HIÐ gullna ráð sem öllum er gefið sem fall-
ið hafa á megrunarkúr er að gefast ekki
upp. Umfangsminna holdafar ávinnst ekki
með tímabundinni megrun heldur lang-
tímabreytingum á lífsstíl. Sama má segja
um ris Íslands úr öskunni. Það mun taka
tíma og við því er ekki til nein skyndilausn.
Endurskoðun stjórnarskrárinnar má vissu-
lega vera partur af langri vegferð að hinu
nýja og betra Íslandi sem vonir standa til
um. En sú vinna verður að einkennast af
vandvirkni. Hugmyndir um að sneiða hjá
niðurstöðu Hæstaréttar og skipa „ólög-
mætu“ fulltrúana í stjórnlaganefnd er enn
ein tilraun til að stytta sér leið. Við höfum
nú þegar fallið einu sinni á megrunarkúrn-
um. Látum af skyndilausnum, tökum lífs-
stílinn í gegn og kjósum heldur aftur á
stjórnlagaþing í góðu tómi.
Stjórnlagaþing er eins og megrun
Bjartur
(Hrafntóftar Hrammur)
er 10 ára í dag. Bjartur lauk námi í
hundaskóla síðla árs 2001 og hefur
frá árinu 2010 starfað sem sjálf-
boðaliði fyrir Rauða kross Íslands.
Bjartur tekur á móti gestum á heimili
sínu Suðurgötu 56 í Hafnarfi rði nk.
laugardag, 5. febrúar, milli kl. 15.00
og 18.00 og mun hann þar m.a. sýna
gestum nokkrar brellur sem hann
hefur lært.
Bjartur æskir þess að velunnarar
hans séu ekki að spandera í g jafi r
en þeir mega þess í stað veita
andvirði g jafa til Rauða kross
Íslands á reikning 0327-26-6808,
kt. 680878-0139.
10 ára afmæli
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
VERTU MEÐ VIÐSKIPTIN
Í RASSVASANUM
m.visir.is
Fáðu Vísi í símannog iPad!
Meiri Vísir. Deildu Vísi með öðrum.
Þeir sem setja „like“
við Vísi á Facebook
geta unnið óvænta
vinninga í hverri viku.
BÍTIÐ
MEÐ HEIMI OG KOLLU
ALLA VIRKA DAGA KL. 6.50