Fréttablaðið - 02.02.2011, Síða 50
2. febrúar 2011 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
10 dýrustu á heimsvísu
(Milljónir punda / milljarðar kr.)
Cristiano Ronaldo (80 / 14,9) Man Utd til Real Madrid (2009)
Zlatan Ibrahimovic (60,7 / 11,3 ) Inter til Barcelona (2009)
Kaká (56,1 /10,4) AC Milan til Real Madrid
Fernando Torres (50 / 9,2) Liverpool til
Chelsea (2011)
Zinedine Zidane (45,6 / 8,5 ) Juventus til
Real Madrid (2001)
Luis Figo (37 /7) Barcelona til Real
Madrid (2000)
Hernán Crespo (35,5 / 6,6 ) Parma til
Lazio (2000)
Andy Carroll (35 / 6,5 ) Newcastle til
Liverpool (2011)
David Villa (34 / 6,3) Valencia til Barcelona
(2010)
Gianlugi Buffon
(32,6 / 6,1) Parma til
Juventus
Sá
stærsti:
Ronaldo er
dýrasti knatt-
spyrnumaðurinn
frá upphafi – og
það met verður seint
slegið.
Stærstu leikmannakaupin
10 dýrustu á Bretlandi
(Milljónir punda / milljarðar kr.)
Fernando Torres (50 / 9,2) Liverpool til Chelsea (2011)
Andy Carroll (35 / 6,5 ) Newcastle til Liverpool (2011)
Robinho (32,5 / 6) Real Madrid til Man
City (2008)
Andrei Shevchenko (31 / 5,8) AC
Milan til Chelsea (2006)
Dimitar Berbatov (30,8 / 5,7)
Tottenham til Man Utd (2008)
Rio Ferdinand (29,1 / 5,4) Leeds
til Man Utd (2002)
Juan Sebastian Veron (28,1 /
5,25) Lazio til Man Utd (2001)
Yaay Toure (28 / 5,2 ) Barcelona til Man
City (2010)
Wayne Rooney (27 / 5) Everton til
Man Utd (2004)
Edin Dzeko (27 / 5) Wolfsburg til
Man City (2011)
Ný viðmið: Fernando Torres er
dýrasti knattspyrnumaður Englands
frá upphafi. Aldrei áður hafa ensk lið
gert slíkan risasamning sín í milli.
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen mun spila í treyju númer 22
hjá Fulham sem er sama númer
og hann spilaði með við góðan
orðstír í sex ár hjá Chelsea frá
2000 til 2006. Eiður Smári lék í
treyju númer 7 hjá Stoke alveg
eins og hann gerði hjá Barcelona.
Hann var hins vegar númer 9 hjá
franska liðinu Mónakó.
„Vonandi tekst mér að koma
fótboltaferlinum aftur í gang,“
sagði Eiður Smári í viðtali á
heimasíðu Fulham. „Ég tel að
það búi miklir hæfileikar í þessu
liði og staðan í deildinni endur-
speglar það ekki. Ég þekki Suður-
London vel og það var því auðveld
ákvörðun fyrir mig að fara til
Fulham,“ sagði Eiður sem æfði í
fyrsta sinn með Fulham í gærdag
og verður með á móti Newcastle á
Craven Cottage í kvöld. - óój
Eiður Smári hjá Fulham:
Fær sitt gamla
Chelsea-númer
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Fagnar hér
marki með Chelsea. MYND/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Gunnar Heiðar Þor-
valdsson hefur komist að sam-
komulagi við danska liðið Esbjerg
um starfslokasamning. Frá þessu
er greint á heimasíðu félagsins.
Gunnar hefur ekki fengið mörg
tækifæri hjá Esbjerg.
Gunnar var á reynslu hjá
skoska félaginu Hibernian á dög-
unum en hann fékk ekki samning.
Hann var lánaður til Fredrikstad
síðasta sumar og þar á undan var
hann hjá Reading í stuttan tíma.
Gunnar, sem er 28 ára gamall,
var markakóngur sænsku úrvals-
deildarinnar 2006 þegar hann var
seldur til þýska liðsins Hannover
96. Þaðan var hann lánaður til
Vålerenga í Noregi þar sem hann
lék 16 leiki 2007-2008. - seth
Gunnar Heiðar Þorvaldsson:
Laus allra mála
hjá Esbjerg
GUNNAR HEIÐAR Lék 26 leiki og skoraði
4 mörk fyrir Esbjerg. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI N1 deild karla í hand-
bolta hefst aftur eftir HM-frí á
morgun með heilli umferð. Sel-
fyssingurinn Ragnar Jóhanns-
son skoraði 9,3 mörk að meðaltali
í fyrstu 11 leikjunum og hefur 16
marka forskot á næsta mann - óój
Markahæstu menn:
1. Ragnar Jóhannsson, Selfoss 102
2. Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK 86
3. Bjarni Fritzson, Akureyri 84
4. Einar Rafn Eiðsson, Fram 79
5. Ólafur Andrés Guðmundsson, FH 74
6. Bjarki Már Elísson, HK 70
7. Ásbjörn Friðriksson, FH 69
8. Bjarni Aron Þórðarson, Afturelding 69
9. Björgvin Þór Hólmgeirsson, Haukar 66
10. Atli Ævar Ingólfsson, HK 63
Markakóngsbaráttan í N1:
Ragnar með 16
marka forskot
RAGNAR JÓHANNSSON Hefur leikið vel
með Selfossi í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Chelsea ætlaði í fyrstu
ekki að eyða neinu í nýja leikmenn
í upphafi mánaðarins en þegar
klukkan sló ellefu í gærkvöldi og
félagaskiptaglugginn hafði lokast
þá var ljóst að Roman Abramov-
ich hafði pungað út meira en 71
milljón punda í tvo leikmenn. Það
sem meira er að 50 milljón punda
tilboð Chelsea í Fernando Torres
sá öðru fremur til þess að Liver-
pool keypti tvo framherja í stað-
inn, Andy Carroll og Luis Suarez,
fyrir samtals 58 milljónir punda.
Ensk félög hafa aldrei eytt svona
miklu í leikmenn í janúar eða sam-
tals 225 milljónum punda. Þetta
er meira en sjöföld upphæð sem
ensku félögin eyddu í leikmenn
fyrir einu ári og bættu gamla
metið frá janúar 2008 um 50 millj-
ónir punda eða eitt stykki Fern-
ando Torres.
Það voru reyndar bara fjög-
ur félög sem eyddu meira en tíu
milljónum punda í þessum jan-
úarglugga og það voru Chelsea,
Liverpool, Manchester City og
Aston Villa. 80 prósent af þessum
225 milljónum fóru í kaup þessara
félaga á sex leikmönnum. Roman
Abramovich reddaði 71 milljón
punda svo Chelsea gæti keypt þá
Fernando Torres og David Luiz
(frá Benfica), Liverpool notaði
peninginn fyrir söluna á Torres
og Ryan Babel (til Hoffenheim)
til þess að kaupa þá Andy Carroll
og Luis Suarez, fyrir 58 milljónir,
Abu Dhabi-eigendur Manchester
City voru tilbúnir að kaupa Edin
Dezko fyrir 27 milljónir og Randy
Lerner, eigandi Aston Villa, þótt-
ist vera tilneyddur til að eyða 20
milljónum í Darren Bent svo Villa-
liðinu tækist að rífa sig upp úr fall-
baráttunni.
Fernando Torres varð í gær
dýrasti leikmaðurinn í sögu enska
boltans og sá fjórði dýrasti í heimi.
Hann bætti opinberlega met Rob-
inhos (frá 2008) sem Manchest-
er City keypti á 32,5 milljónir frá
Real Madrid en almennt er þó talið
að Manchester City hafi borgað um
47 milljónir fyrir Carlos Tevez árið
2009. Upphæðin fyrir Tevez var
ekki gefin upp og því kemst hann
ekki á listann yfir þá dýrustu.
Andy Carroll sem Liverpool
keypti á 35 milljónir frá New-
castle, er því orðinn annar dýrasti
leikmaðurinn í sögu enska boltans
þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára
gamall. Hann er enn fremur í átt-
unda sæti yfir dýrustu leikmenn
heims og auk þess hefur ekki verið
borgað meira fyrir enskan leik-
mann. Carroll tók það met af Rio
Ferdinand sem kostaði Manchest-
er United 29,1 milljón punda frá
Leeds árið 2002.
Þeir Torres og Carroll eru einu
fulltrúar enskra liða á topp tíu yfir
dýrustu leikmenn sögunnar og
stinga sér þar upp á milli kaupa
spænskra og ítalskra félaga sem
hafa einokað listann upp á síðkast-
ið. Þeir Robinho (frá Real Madr-
id til Manchester City, 32,5 millj-
ónir 2008) og Christian Vieri (frá
Lazio til Internazionale, 32 millj-
ónir 1999) duttu aftur á móti í stað-
inn út af topp tíu listanum.
Cristiano Ronaldo er áfram dýr-
asti leikmaður sögunnar en Real
Madrid bætti metið í tvígang sum-
arið 2009, fyrst með því að kaupa
Kaka frá AC Milan fyrir 56 millj-
ónir punda og svo með því að
kaupa Ronaldo frá United fyrir
80 milljónir. Real Madrid hefur
átt metið frá árinu 2000 þegar
það keypti Luis Figo á 37 millj-
ónir punda frá Barcelona árið
2000 og bætti það met með því að
kaupa Zinedine Zidane á 46 millj-
ónir punda frá Juventus sumar-
ið 2001. Lazio er síðasta félag
fyrir utan Real til að eiga metið
en ítalska félagið keypti Hernan
Crespo á 35,5 milljónir frá Parma
árið 2000.
Hér til hliðar má sjá tvo lista
yfir annars vegar dýrustu leik-
menn sögunnar og hins vegar
dýrustu leikmennina í sögu enska
boltans. ooj@frettabladid.is
Engin kreppa í enska boltanum
Liverpool og Chelsea eyddu saman 24 milljörðum íslenskra króna í leikmenn á lokadegi félagaskiptaglugg-
ans og ensk félög settu nýtt janúarmet með því að kaupa menn fyrir 225 milljónir punda. Fréttablaðið hef-
ur skoðað hvar þeir Fernando Torres og Andy Carroll standa nú meðal dýrustu fótboltamanna sögunnar.
KÖRFUBOLTI Keflavík hefur bætt
við sig serbneska bakverðinum
Marinu Caran í Iceland Express-
deild kvenna sem þýðir að fimmt-
án erlendir leikmenn spila núna í
deildinni.
Öll átta lið deildarinnar eru nú
með tvo erlenda leikmenn nema
Íslandsmeistarar KR og Haukar
sem létu bresku stelpuna Lauren
Thomas-Johnsson fara á dögun-
um. Njarðvík er eina lið deildar-
innar með þrjá erlenda leikmenn
en öll hin þrjú liðin í b-deildinni
eru með tvo. - óój
Liðin átta í kvennakörfunni:
Fimmtán er-
lendar stelpur
GEIR ÞORSTEINSSON er sjálfkjörinn formaður KSÍ til næstu tveggja ára því önnur framboð bárust ekki í kosningu formanns á 63.
ársþingi KSÍ sem fer fram laugardaginn 12. febrúar. Geir hefur verið formaður KSÍ frá árinu 2007 en hann fékk heldur ekkert mótframboð
árið 2009. Varaformaðurinn Gylfi Þór Orrason og gjaldkerinn Guðrún Inga Sívertsen bjóða sig einnig áfram fram í aðalstjórn.
FÓTBOLTI Það var engin breyting
á toppi ensku úrvalsdeildarinnar
í gærkvöldi þar sem Manchester
United, Arsenal og Chelsea unnu
öll sína leiki. Það tók Manchester
United aðeins 50 sekúndur að kom-
ast yfir í 3-1 heimasigri á Aston
Villa en bæði Chelsea og Arsen-
al þurftu að koma til baka í sínum
leikjum, Chelsea vann 4-2 útisigur
á Sunderland og Arsenal vann 2-1
heimasigur á Everton.
Wayne Rooney hafði aðeins skor-
að tvö mörk í fyrstu fjórtán deild-
arleikjum sínum á þessu tímabili
en skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik
í gær. Rooney skoraði fyrra mark-
ið á fyrstu mínútu eftir langa auka-
spyrnu markvarðarins Edwins van
der Sar og það seinna í uppbótar-
tíma fyrri hálfleiks eftir frábæan
undirbúning frá Nani. Nemanja
Vidic innsiglaði síðan sigurinn
eftir sendingu Rooneys eftir að
Darren Bent hafði minnkað mun-
inn.
Miðverðirnir John Terry hjá
Chelsea og Laurent Koscielny hjá
Arsenal skoruðu báðir mikilvæg
mörk í sigrum sinna liða en bæði
lið voru að vinna sinn þriðja leik í
röð í deildinni og eru áfram fimm
stigum (Arsenal) og tíu stigum
(Chelsea) á eftir toppliði Manchest-
er United.
Louis Saha var kolrangstæður
þegar hann kom Everton í 1-0 á 24.
mínútu en Andrei Arshavin kom
inn á sem varamaður á 62. mínútu
og var búinn að jafna leikinn eftir
átta mínútur. Laurent Koscielny
skoraði sigurmarkið með skalla úr
markteignum eftir frábæra horn-
spyrnu frá Robin van Persie.
Phillip Bardsley kom Sunder-
land í 1-0 á 4. mínútu en Frank
Lampard (víti) og Salomon Kalou
komu Chelsea síðan í 2-1 áður en
Kieran Richardson jafnaði metin
með skoti beint úr aukaspyrnu.
John Terry kom Chelsea yfir á
60. mínútu og það var síðan besti
maður vallarsins, Nicolas Anelka,
sem innsiglaði sigurinn í lokin.
- óój
Wayne Rooney skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Manchester United á Aston Villa:
United, Chelsea og Arsenal unnu
LAURENT KOSCIELNY Fagnar hér mikilvægu sigurmarki með félögum sínum. MYND/AP