Barnablaðið - 01.12.1938, Page 9
BARNABLAÐIÐ
15
Mundi litli.
(Framh.). .
Eftir litla stund er rugguhestur-
inn kominn upp í hjólbörurnar og
þetta þrennt er á ferðinni að Holti.
Víst er nóttin dimm, en hann hef-
ir beðið Guð að varðveita sig, og
því óttast hann nú ekkert illt.
í Holti er allt fólkið háttað og
jafnvel sofnað. — Mundi heldur
samt áfram heim að íbúðarhúsinu,
fast ákveðinn í að drepa á dyr og
ná tali af Ólafi. — Skyldi hann
verða reiður yfir ónæðinu? —
Mundi ber rösklega að dyrum og
bíður dálitla stund. Nei, þeir hafa
ekki heyrt til hans. — Hann ber
aftur. Nú heyrir hann að einhver
er að koma, og ljósbirtu leggur 1
forstofuna. Hurðin opnast og Ól-
afur kemur sjálfur til að vita hver
sé fyrir utan. Undir eins og hann
sér litla drenginn, segir hann al-
varlega: „Hvað ert þú að fara um
hánótt, drengur?" — Mundi kem-
ur hálfhræddur til hans, heilsar
honum með handabandi og segir
svo: „Kg er kominn hingað til að
finna þig upp á rugguhestinn
minn og vegna hennar mömmu
minnar. Þarna geturðu séð hann í
hjólbörunum." — Qlafur lítur
hálfundrandi á drenginn og svo á
hjólbörurnar. „Finna mig upp á
rugguhestinn þinn og vegna
mömmu þinnar. Þetta er nú skríti-
legur samsetningur. Hvað meinar
þú, drengur?“ — „Heyrðu mig“,
segir Mundi, „þegar ég var að
leika mér að leikföngunum mín-
um í dag, þá tók ég eftir því að
mamma mín grét svo sárt. Hún
var á hnjánum við rúmið sitt og
i