Barnablaðið - 01.08.1946, Side 10

Barnablaðið - 01.08.1946, Side 10
32 BARNABLAÐIÐ hátta. Mamma hennar var mjög þreytt á þessu, og pabbi hennar sagði: Litla stúlkan mín verður að hætta segja svo oft: Ég vil ekki. En þetta var orðinn vani, sem ekki var auðvelt að sigra. Dag nokkurn kom góð kona í heimsókn. Allir kölluðu hana leik- konuna, af því að henni þótti svo skemmtilegt að leika sér við börn. Þegar hún heyrði hve ljótan vana litla stúlkan hafði, hugsaði hún: Þessi litla stúlka segir auðvitað að hún vilji ekki leika sér við mig, en mig langar til að hjálpa henni að hætta þessum ljóta vana. Leikkonan tók upp fallega myndabók og bauð litlu stúlkunni að sjá. Nú skulum við koma í leik- inn „Mér líkar“, sagði hún. Mér líka þessi fallegu tré, mér líka þess- ar yndislegu róisir, nú skalt þú finna hvað þér líkar. Litla stúlkan horfði á bókina og byrjaði: Mér líkar ekki. — Nei, sagði konan, þetta er ekki í leiknum, við eigum að finna það, sem okkur líkar og svo fletti hún blöðunum. Á einum stað sá litla stúlkan kettling. Mér líka litlar kisur, sagði hún, og brátt fann hún fleira skemmtilegt. Á eft- ir tók konan hana með sér út á göngu. Þar sáu þær margt fagurt. Nú vildi litla stúlkan á hverjum degi leika sér „Mér líkar“-leikinn. Hún hætti að hugsa um það, sem henni líkaði ekki, og þá sáu allir að hún var falleg stúlka. Nótt við Tammerfoss Sumarnóttin kemur án stjarna, svo róleg og hlý, án mánaljóss. Sjáið! hve skín í Tammerfoss, þarna. Með söngvum hann minnist nú síns hróss. Skuggalaus starir Skógur í draumi blíðum. Syngjandi fuglar flögra hátt í hlíðum. í árskútanum situr þú og starir. Straumrótið á við ljósrar næturfarir. Lít þá á fuglinn líða yfir nesið, ljúfum með tökum lyftir hann sér hátt. Morgundöggin döggvar ylmríkt grasið. Djúpum svefni björk svaf þessa nótt. En Tammerfoss brýzt með söng fram finnska elfi. Sjá, morgungeislar glitra á himins hvelfi. A fossbúans hörpu með fögrum undirsöng, Tammerfoss spilar sumarkveldin löng. K. A. Tovaststjerna. xzq þýddi. Góður drengur Dag nokkurn ypru þeir Frank og Karl að skrifa meðan Klara frænka var úti. Helltu þeir þá niður blek- inu, svo að það flaut um borðið. „Segðu ekki frá þessu,“ hvíslaði Karl. „Við hlaupum burt og lokum hurðinni, og hún veit ekki hver hefur gjört þetta." — „Við eigum að segja frá þessu," andmælti Frank, „og segja, að við séum hryggir." — „Það er auðveldara að segja það

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.