Barnablaðið - 01.02.1966, Síða 27
Drcnffirnir voru fæddir blindir. Orsökin var starblinda.
Á þrera þeirra höfðu áður verið framkvæmdar augna-
aðgerðir, en án áranjfurs. Kn sérfræðinfjarnir á litla
sjúkrahúsinu í San Cataldo voguðu að ^era enn eina til-
raun. Nú eru þeir frægustu læknar Sikileyjar.
anna. „Ljós, ég sé ljós!“ A næsta augnabliki
fylltist sjúkrastofan af gleðihrópum, þegar
drengirnir einn eftir annan tóku eftir birtu,
litum, hlutum og svo að sjálfsögðu fólkinu,
sem þeir aldrei áður höfðu augum litið.
Bræðurnir fimm höfðu allir fengið sjón-
ina. Þeir föðmuðu hvor annan og hina óum-
ræðilega hamingjusömu móður sína. Og lækn-
irinn Luigi Picardo gaf tilfinningum sínum
útrás, með því að faðma starfsbróður sinn.
og síðan flýtti hann sér út úr sjúkrastofunni
og grét.
Eftir litla stund var á ný bundið um augu
drengjanna. Þeir þurftu smátt og smátt að
venjast birtunni. Ennþá þoldu augu þeiiTa
ekki sólskinið. Með hverjum degi sem leið
lengdist tíminn sem þeir fengu að vera án
augnaumbúðanna. Þær clagstundir, sem þeir
fengu að vera án umbúðanna, litu þeir í
kringum sig, spurðu, athuguðu og undruðust
yfir umhverfinu. Þessar stundir, lét starfs-
fólkið allt annað víkja til hliðar og sýndi
þeim þann heim, sem þeir nú loks gátu litið
með eigin augum.
Nýir möguleikar. — Nýlt lif.
Picardo kom hvern dag og fylgdist með
sjúklingum sínum. Dag einn, þegar umbúð-
irnar höfðu verið látnar á augu drengjanna
og þeir lágu í sjúkrarúmunum og hvíldust,
! fyrsta sinn fær litli Calogero möguleika á að skoða
myndabók, horfa á mömmu sínu og skoða form og; lita-
skrúð blómanna. Nýr heimur hefur opnazt.
27